149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

barnaverndarlög.

126. mál
[20:56]
Horfa

Flm. (Brynjar Níelsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þetta finnst mér mjög undarlegar spurningar. Ef við teljum að foreldri brjóti gegn barni, svo skaðað geti barnið, erum við öll sammála um að viðurlög séu við því. Það hindrar ekki að barnið geti umgengist það foreldri sem sætir refsiábyrgð. Það er fullt af foreldrum í fangelsi.

En þetta er ekki til að koma foreldrum í fangelsi. (ÞSÆ: Nú?) Þetta er til þess að foreldrar beri ábyrgð. Öll þurfum við að bera ábyrgð á rangri hegðun, ólöglegri hegðun, í hverju sem er.

Það er verið að snúa hlutunum á haus með þessum hætti. Ég verð að segja að ég veit ekki hvað liggur að baki andstöðu af þessu tagi. Hefur þetta eitthvað með kynin að gera? Hefur þetta eitthvað með það að gera hvar forsjáin liggur iðulega? Hún gerði það svolítið. Ég var spurður að því trekk í trekk: Vilt þú setja mæður í fangelsi? Það eru fyrst og fremst feður í fangelsi í dag, sko.

Þetta er undarleg umræða. Ég segi ekki annað.

Það er þannig víða að þegar menn brjóta gegn barni og réttindum þess með þessum hætti bera þeir refsiábyrgð sem oft getur falist í sektum, oftast auðvitað. Eða því atriði sem ég tel mikilvægast í þessu, að svipta einfaldlega það foreldri rétti til forsjár, t.d. ef forsjárforeldrar tálma, sem er náttúrlega iðulega, að þeir séu einfaldlega sviptir forsjánni og þurfi bara að sæta umgengnireglum (Forseti hringir.) eins og hitt foreldrið þurfti að gera áður.