149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

barnaverndarlög.

126. mál
[20:58]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Herra forseti. Enn er hv. þingmaður í andsvari um eitthvað allt annað en hann er spurður um. Ég alla vega spurði hv. þingmann ekki að því hvort hann vildi setja mæður í fangelsi. Ég spurði hann hins vegar hvort honum þætti ekki ákveðin þversögn í því að tala um umgengnisrétt beggja foreldra og í næstu andrá tala um bara frekar þunga fangelsisrefsingu, miðað við allt og allt. Hvort honum þætti engin þversögn í því fólgin gagnvart því að takmarka umgengni. Hann getur verið ósammála mér um að það sé málefnaleg spurning, gott og vel, og haldið áfram að fabúlera um hvað standi að baki þessum spurningum mínum.

En mér finnst þessi mál frekar snúin. Mér finnst málsmeðferðin á þeim hingað til hafa sýnt að þar er víða pottur brotinn. Það vanti fjármagn, það vanti sérhæfingu, það vanti betri málsmeðferð, það vanti betri þjálfun og greinilega betri fræðslu hjá sýslumannsembættunum um hvernig sé best að taka á svona málum. Og sömuleiðis vanti bara heildstæða skoðun á hvernig best sé að taka á tálmunarmálum.

Mér finnst líka vanta inn í þetta frumvarp hjá hv. þingmanni einhvers konar undanþágur, einhvers konar tilhliðranir fyrir tálmun í sjálfsvörn fyrir barnið.

Ég velti þess vegna fyrir mér — og endurtek í raun bara sömu spurningu og ég spurði hv. þingmann síðast þegar hann lagði þetta mál fram — hvort það hefði ekki verið æskilegra að leggja fram þingsályktunartillögu sem fæli dómsmálaráðherra að fara í heildstæða úttekt á því hvað vanti upp á, að hún setti sína sérfræðinga í það mál og ynni úr því talsvert vandaðra frumvarp en hv. þingmaður virðist vera megnugur um að færa okkur hingað inn.