barnaverndarlög.
Hæstv. forseti. Þetta frumvarp er afskaplega vandað og einfalt. Það fjallar um að þessi brot, eins og önnur brot gegn börnum, sæti sömu viðurlögum og önnur andleg ofbeldisbrot, eða eitthvað sem stofnar lífi og heilsu barnsins í hættu. Þetta er ekkert flókið. Það þarf enga úttekt eða þingsályktunartillögu fyrir ráðuneytið um að gera eitt eða neitt, þetta er bara sáraeinfalt. Það er sáraeinfalt að við hér viðurkennum og þorum að viðurkenna að í mörgum tilvikum eru þetta mjög alvarleg brot gegn börnum, en það virðist mörgum reynast ógurlega erfitt með að sætta sig við það og þeir líta á þetta sem eitthvert kvenréttindamál, að setja mæður í fangelsi, þetta sé einhver misskilningur um að gott sé fyrir barnið að einhver fari í fangelsi. Það er auðvitað ekki gott fyrir neitt barn að einhver sé í fangelsi. Það þarf þá enginn að fara í fangelsi frekar en hann vill. Hann þarf bara að fara eftir reglum. Flóknara er það ekki.
Þess vegna er sérstaklega breytt þessu ákvæði núna um að ef koma upp einhver slík atvik eftir á, þegar búið er að kveða upp dóm eða gera sátt eða … (Gripið fram í: Annars er það ekki tálmun ...) Þess vegna er ég að segja að það geta komið upp einhver slík atriði. Þess vegna þarf að kanna með sérstökum hætti hvort um einhverja óeðlilega tálmun sé að ræða. Enginn á að vera betur til þess fallinn en barnaverndaryfirvöld. Þess vegna er frumvarpið orðið betra núna en það var.
Kjarni málsins er bara þessi — og einfaldleikinn og skýrleikinn og snilldin við þetta frumvarp — að við viðurkennum það einfaldlega bara að þetta er brot gegn barninu, það er kjarni málsins, sem við eigum ekki að sætta okkur við.