149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

barnaverndarlög.

126. mál
[21:23]
Horfa

Flm. (Brynjar Níelsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Megnið af þessari ræðu fjallaði ekkert um þetta frumvarp eða neitt tengt því, (Gripið fram í: Nú?) það snýst ekki um umgengnisdeilur. (RBB: Nei.) Nei, það gerir það ekki. (RBB: Akkúrat.) Hér er sérstaklega tekið fram að búið sé að leysa þær. Það er búið að afgreiða þau mál. Það kom strax fram í þessari ágætu ræðu hv. þingmanns og að koma með svona frumvarp á stórum degi kvenréttinda.

Snýst þetta orðið um kvenréttindi eða kynjaréttindi? Ég vil spyrja hv. þingmann: Þegar kominn er dómsúrskurður um forsjá og umgengni og annað foreldrið fer ekki eftir því, brýtur gegn barninu þá, á það þá að vera án viðurlaga? Engin áhrif? Myndi t.d. hv. þingmaður sem hefði forsjá barns líða það ef faðirinn, sem á barnið líka, myndi nú bara ekki skila því úr umgengni og segja: Ég tel að forsjárforeldrið beiti það ofbeldi. — Á umgengnisforeldrið að komast upp með það án nokkurra viðurlaga? Það væri mjög merkileg niðurstaða.

Það er þannig, og líka t.d. í Danmörku, að litið er á þetta sem brot á barnaverndarlögum, en menn fara aðra leið, menn svipta bara viðkomandi forsjá. Það úrræði er líka alltaf hér. Það þarf ekki að fara í einhverja kærumeðferð til lögreglu enda tel ég það algjörlega síðasta úrræðið.