barnaverndarlög.
Herra forseti. Tveimur spurningum var beint til mín, hin fyrri hvort þetta væri kvenréttindamál. Já, þetta er kvenréttindamál því að samkvæmt tölum Hagstofu Íslands kemur fram að 90% barna á Íslandi, sem eiga foreldra sem hafa skilið, búa hjá mæðrum sínum. Það eru líka aðrar tölur sem sýna að þegar annað foreldrið er með forsjá þá er það að langmestum hluta mæður. Þetta er til að svara fyrri spurningunni.
Til að svara hinni seinni, sem mér skildist á hv. þingmanni, herra forseti, að væri úrræði sem hægt væri að nota. Við höfum nú þegar úrræði í barnaverndarlögunum. Við höfum það nú þegar. Við höfum ákvæði um úrskurð um dagsektir, fjárnám fyrir ógreiddum dagsektum og svo aðfararaðgerðir þar sem lögregla kemur inn á heimili og fjarlægir barn til að það fái að umgangast hitt foreldrið. Sú stóra aðgerð, að lögregla komi inn á heimili, fjarlægi barn af heimilinu til að láta það í hendur annars foreldris, til að það foreldri geti haft umgengni við barnið er svo sannarlega ekki óumdeild, hv. þm. Brynjar Níelsson.
Ég á bágt með að sjá að það að varpa öðru foreldrinu í fimm ára fangelsi geti verið betri leið til að leysa úr vanda þeirra barna sem hv. þingmaður kveðst hér vilja leysa úr. Hvernig eiga þau samskipti þá að vera, ef hv. þingmanni er svo umhugað um að barn eigi að geta notið samvista við báða foreldra sína? Á það síðan að gerast bara með heimsóknum á Litla-Hraun, eða hvernig á það að vera? (BN: Já, já, það gerist þannig.)