barnaverndarlög.
Hæstv. forseti. Hv. þingmaður segir þetta kvenréttindamál vegna þess að 90% barna er með lögheimili hjá móður. Þetta frumvarp snýst ekki bara um þá foreldra. Þetta snýst um báða foreldra. Þá eru væntanlega 90% af foreldrum umgengnisforeldrar þar sem barnið er ekki með lögheimili. Þá getum við bara kallað þetta karlréttindamál, er það ekki? Þetta er algerlega rugluð umræða, hv. þingmaður.
Fólk sem er í andstöðu við þetta frumvarp verður bara að svara því, ef það er í andstöðu við það, og segja það fullum fetum og vera heiðarlegt í því að það telji að ekki eigi að refsa fólki fyrir þetta, að þetta sé ekki brot, og að ekki eigi að vera viðurlög. En það þorir enginn að segja það beint. Er það af því að það eru 90% konur sem tálma? Kann það að vera ástæðan? Ég spyr. (Gripið fram í: … ekki 90% sem tálma.) Nei. En kann að vera að menn telji það?
Hvernig eru þessi tálmunarmál? Hver er varnaraðili og hver er sóknaraðili? Veit hv. þingmaður það? Ég veit það. Þetta snýst auðvitað ekkert um kvenréttindi, karlréttindi eða kynjaréttindi. Þetta snýst um það að fólk fari að lögum og reglum, vanræki ekki börnin og rétt þeirra. Þetta er ekki flóknara en það. En hér geta sumir bara ekki sætt sig við það einhverra hluta vegna. Ég held að ég hafi nefnilega fengið svarið við því áðan. Fyrsta setningin hjá hv. þingmanni var sú: Þetta er kvenréttindamál. Þess vegna eiga ekki að vera viðurlög. Það er hin skýra niðurstaða. Takk fyrir það.