barnaverndarlög.
Herra forseti. Ég átta mig bara ekkert á rökfræðinni sem hv. þingmaðurinn er að nota hérna. Það eru nú þegar viðurlög í barnaverndarlögunum eins og ég nefndi áðan í ræðu minni og í mínu fyrra andsvari. Það eru nú þegar viðurlög í barnaverndarlögum um það ef umgengni er brotin, umgengnissamningur er brotinn. Ég átta mig hreinlega ekki á þessu.
Og, jú, þetta er kvenréttindamál. Vegna þess að það eru fleiri, margfalt fleiri börn fráskildra foreldra sem eru hjá mæðrum sínum, þar sem mæður þeirra hafa umgengni með börnunum. Þannig að, já, þess vegna kalla ég þetta kvenréttindamál þó að hv. þingmaður vilji kalla þetta karlréttindamál. Gott og vel, þá skulum við bara vera ósammála um það. Ég hef alla vega einhverjar tölur til að nota sem haldreipi á meðan mér sýnist að hv. þm. Brynjar Níelsson noti nú eftir sem áður tilfinningar sínar til að rökstyðja mál sitt en aldrei neinar tölur, rannsakanir eða kannanir. (Gripið fram í.) Algerlega á skjön við það sem tíðkast á Norðurlöndunum, algjörlega á skjön við það, fullkomlega.
Hér er verið að leggja til eitthvert undarlegt ákvæði í barnaverndarlögunum sem kallast bara einfaldlega ekkert á við það sem tíðkast á Norðurlöndunum í refsirétti eða við framkvæmd barnaverndarlaga. Gott og vel, þá skal hv. þm. Brynjar Níelsson tala um að hér sé um karlréttindamál að ræða, (BN: Ég sagði það ekki.) að hér sé mikið og brýnt mál, þó svo að á níu ára tímabili, árin 2007–2016 hafi alls verið níu tilfelli þar sem (Forseti hringir.) ströngustu aðgerðum var beitt til þess að koma á umgengni. Níu tilfelli á níu ára tímabili. (Forseti hringir.) Þetta er öll nauðsynin. Þetta er þunginn sem hvílir að baki framlagningu þessa máls.