barnaverndarlög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar fyrst að segja að nú er ég mikill jafnréttissinni og mér finnast reyndar þær tölur sem hv. þingmaður fór með um hlutfall þeirra foreldra sem fara með forræði eða eru lögheimilisforeldrar — hversu hátt hlutfall? Ég held að hún hafi nefnt að 90% séu þar konur — mér finnast þær ekkert sérstaklega gott mál út frá jafnréttisvinklinum. En ég lýsi því aftur yfir að mér finnst þetta mál, sem og önnur mál er tengjast forræði barna, snúast fyrst og fremst um réttindi barnanna, ekki réttindi mæðra versus réttindi feðra.
Ég held að hér sé ekki um neitt sérstakt forgangsmál Sjálfstæðisflokksins að ræða vegna þess að þetta mál kemur einfaldlega inn út frá tímaröðinni og þingmannamál liggja hér fyrir í tímaröð. Það hafa önnur þingmannamál Sjálfstæðisflokksins farið í gegn og verið samþykkt nú þegar á þessu þingi og því miður verður að teljast ólíklegt að þegar mælt er fyrir þessu máli núna, 13. maí og mjög stutt er í þinglok, fái það einhverja efnislega umræðu inni í nefndinni. En ég ítreka aftur á móti að ég held að það sé mjög mikilvægt að málið fái slíka umræðu.
Ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni að það er mjög nauðsynlegt að vinna að því að stytta biðtíma og flýta sáttameðferð. Ég reyndar stóð í þeirri meiningu að ráðherra hefði unnið að slíkum málum og það hefði náðst einhver árangur, þótt það virðist vera ákveðið misræmi í hversu vel eða illa þetta gengur hjá sýslumanni.
En það skal ég heils hugar taka undir og fara með hv. þingmanni og öðrum góðum þingmönnum í að vinna að því. Ég held að það sé mjög, mjög mikilvægt.
En ég held að ég noti tækifærið á eftir í ræðu til að fara betur yfir sjónarmið mín hvað þetta varðar.
En mig langar þó að nefna eitt vegna þess að aðför er nefnd. Ég held að það hljóti að vera versta leiðin til að huga að (Forseti hringir.) réttindum barns, að lögreglan mæti inn á heimili til að fjarlæga barn úr faðmi annars foreldris til að færa yfir til hins. Svoleiðis hlutir (Forseti hringir.) eiga auðvitað ekki að gerast og gerist auðvitað væntanlega í algjörum undantekningartilfellum og við ættum að fækka þeim.