149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

barnaverndarlög.

126. mál
[21:39]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég áttaði mig ekki alveg á hver seinni fyrirspurnin var, nema hvað ég er sammála hv. þingmanni um að það væri ágætt ef hlutfall barna foreldra sem hafa skilið væri jafnara þegar kemur að búsetu hjá foreldrum. Ég held að það gæti verið bara hið besta mál og kannski í takti við þróunina eins og hún hefur verið á síðustu árum í auknu foreldrajafnrétti.

En ég var heldur ekki að segja að þetta væri gott, bara til að leiðrétta hv. þingmann. Það kom hvergi fram í minni ræðu eða mínum orðum. Þetta einfaldlega staðreynd sem fram kemur á vef Hagstofu Íslands um hversu mörg prósent barna foreldra sem hafa skilið búa hjá mæðrum sínum.

Og sömuleiðis er, eins og vitnað er hér til, samkvæmt nýjustu tölum — reyndar frá árinu 2010 — hlutfall mæðra sem voru einar með forsjána á móti feðrum afskaplega hátt, miðað við lága tölu hjá feðrum.

Það gleður mig að heyra hv. þingmann lýsa yfir staðföstum vilja til þess að vinna að lausn mála þegar kemur að styttingu biðtíma eftir úrlausn foreldra sem eru að skilja, eftir því að fá aðstoð við gerð umgengnissamninga. Sömuleiðis, eins og ég minntist á hér og held að væri hið besta mál, að veita foreldrum sálfræðiráðgjöf og félagsráðgjöf við þessar erfiðu aðstæður. Ég held að við gætum komið í veg fyrir ansi marga … eða alla vega linað þá sorg sem margar fjölskyldur fara í gegnum þegar um skilnað er að ræða og ekki síst börn sem fara í gegnum sorgarferli þegar skilnaður foreldra verður.