barnaverndarlög.
Herra forseti. Ég vona að forseti og þingheimur fyrirgefi mér ef það er einhver nýgræðingsbragur á þessari ræðu, enda er þetta minn fyrsti dagur hér og ég að stíga mín fyrstu skref í ræðustóli. En ég ætla ekki að lengja umræðuna mjög mikið. Ég tók eftir því að hv. flutningsmaður virkaði svolítið þreyttur. (Gripið fram í.) Mig langaði samt að hafa um þetta nokkur orð.
Við vitum að fólk sem á mjög mikið undir þeim breytingum sem við ræðum í dag fylgist með umræðunum, hvort sem það er í beinni útsendingu eða síðar meir. Það var mikið undir því regluverki sem gildir núna um þessi mál og þeim tillögum sem hér eru lagðar fram en einnig þeim úrbótatillögum sem margir hv. þingmenn hafa vikið að í umræðunni. Við vitum að eflaust fylgjast með umræðunni foreldrar sem ekki hafa fengið að njóta samvista við börn sín af einhverjum ástæðum, foreldrar sem hafa veigrað sér við að setja börn sín í umgengni, ef til vill af mjög lögmætum ástæðum, og svo kannski líka börn eða uppkomin börn sem hafa sjálf verið í þeirri stöðu að foreldrar hafa deilt um forsjá þeirra og umgengni. Vandinn er sá að við vitum ekki hvað það eru margir í neinum af þeim hópum. Við höfum ekki fullnægjandi tölfræði sem getur sagt okkur til um það hvernig þau mál skiptast niður. Við vitum frá barnaverndaryfirvöldum að svokölluð tálmunarmál skiptast í ólíka flokka og þá er einkum talað um annars vegar tilhæfulausa tálmun og svo hins vegar tálmun þar sem foreldrar telja að börnum sínum sé hætta búin fari þau í umgengni.
Við vitum líka að þar getur eigi að síður legið fyrir úrskurður um umgengni sem foreldrar hika við að framfylgja af ótta við slíkt. Er sá ótti tilhæfulaust eða ekki? Það vitum við ekki nógu mikið um. Þá tölfræði höfum við ekki nægjanlega mikið uppi á borðum. Við vitum hins vegar að Kvennaathvarfið varar við frumvarpi eins og þessu. Sagt var áðan að þetta hefði ekkert með ofbeldismál að gera, þau væru annars eðlis. En það er ekki rétt því að ofbeldi, heimilisofbeldi og annað ofbeldi í nánum samböndum, er frekar viðvarandi í þessum málaflokki, þ.e. í þeim fáu málum sem enda í svona miklum ágreiningi. Þar eru oft og tíðum uppi ásakanir um ofbeldi, stundum rökstuddar, stundum órökstuddar. En við slítum málaflokkana ekki sundur vegna þessa.
Blessunarlega, eins og hefur komið fram, lýkur langflestum slíkra mála í sátt. Þetta er því afskaplega lítill hópur sem við erum í rauninni að fjalla um með þessum tillögum. Við vitum að refsivist foreldra setur líf barna í uppnám og við hljótum að gera allt sem við getum í þessum þingsölum til að draga úr slíkum tilfellum frekar en að fjölga þeim og það á alls ekki setja foreldra án tilefnis í fangelsi.
Það hefur líka komið fram af hálfu hv. flutningsmanns, Brynjars Níelssonar, að þetta séu ekki umgengnisdeilur þar sem fyrir liggi úrskurður. Að baki því sjónarmiði liggur væntanlega sú hugmynd að deilum ljúki alltaf með úrskurði en það er alls ekki þannig, vegna þess að deilur halda áfram löngu eftir að úrskurðir eru kveðnir upp. Við þekkjum dæmi þess að menn stofna nýtt og nýtt og nýtt mál, ganga út frá úrskurðaraðila og stofna nýtt mál. Við þekkjum dæmi um það.
Það sem skiptir svo miklu máli í málaflokknum er að við fjöllum um þann veruleika sem er þarna úti, ekki teórískar umræður um hvernig við höldum að þetta sé eða hvernig þetta ætti að vera heldur reynum að beina sjónum að þeim veruleika.
Hér var nefnt að 550 beiðnir um dagsektir hefðu borist. Ég veit ekki hvort fram kom að það var á tíu ára tímabili. Því þarf að fylgja að aðeins 107 tilfelli voru samþykkt þar sem slíkir úrskurðir voru kveðnir upp. Í því liggur að 450 var hafnað. Þetta er eitt dæmi um fjölda mála sem eru til meðferðar.
Hv. flutningsmaður sagði að frumvarpið væri orðið betra og það er rétt, en vont er það nú samt. Hins vegar, og það hefur komið fram í umræðunni, getum við gert miklu betur. Það hefur verið rætt um eflda sáttameðferð og við vitum að sáttameðferð hefur skilað ofboðslega góðum árangri í málaflokknum. Við vitum að við þurfum að gera betur þegar kemur að ofbeldi gegn konum. Refsivörslukerfið nær ekki utan um það, þannig að við þurfum að gera betur í því. Við vitum líka að við þurfum að hraða málsmeðferð, það að fólk sé að bíða jafnvel árum saman eftir niðurstöðu í umgengnismálum og öðrum málum er ekki gott. En við þurfum líka að öðlast betri þekkingu á málaflokknum, betri þekkingu á þeim málum sem við erum að fjalla um.
Ég ætla að enda þetta á aðeins víðtækari nótum. Við vitum að það eru ólíkar hugmyndir um hvernig eigi að bregðast við vandamálum sem mætti kalla félagsleg vandamál. Ýmsir telja að það eigi einkum að gera í gegnum velferðarkerfið en aðrir telja að það eigi að gera í gegnum refsivörslukerfið. Þær aðferðir eru notaðar í sumum ríkjum, t.d. í Bandaríkjunum, þar sem refsivörslukerfið hefur verið gert að lykilkerfi í að bregðast við ýmsum vandamálum, þar sem foreldrar eru fangelsaðir ef börnin þeirra mæta ekki skóla, því að vissulega er það vanræksla, jafnvel ofbeldi gegn börnum að tryggja ekki að þau mæti í skóla. Þetta er það sem er gert í sumum löndum, foreldrar eru settir í fangelsi og teknir þannig út úr lífi barna sinna. Þetta er ekki bara kynjað, það koma líka mjög sterkar kynþáttabreytur inn í þarna.
Ég skipa mér í hóp þeirra sem telja að við eigum að nýta velferðarkerfið til að takast á við svona mál og þar getum við gert miklu betur. Ég vil taka þátt í þeirri vinnu með þeim þingmönnum sem hafa komið upp í pontu og lýst yfir vilja til að gera betur í þeim efnum.