149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

barnaverndarlög.

126. mál
[22:02]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér frumvarp til breytinga á barnaverndarlögum, refsingar við tálmun eða takmörkun á umgengni. Eins og fram kom í andsvörum mínum áðan er ég ein af flutningsmönnunum. Ég var jafnframt flutningsmaður á fyrra frumvarpi sem lagt var fram á 147. þingi, að ég hygg. Ég minnist þess að ég fékk fjölda athugasemda sendar til mín, bæði í tölvupósti og í gegnum samfélagsmiðla. Það voru einhverjir sem hrósuðu mér fyrir að vera á þessu mikilvæga frumvarpi og mikilvægi þess að tekist væri á um þetta mál. Jafnframt fékk ég mikið af hryllilegum sögum mæðra sem hefðu verið að vernda börn sín, að þeirra mati, gegn feðrunum og töldu með einhverjum hætti að þessu frumvarpi væri beint gegn þeim.

Ég vil ítreka það sem kom fram í fyrri ræðum, hjá hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur og jafnframt hjá 1. flutningsmanni, hv. þm. Brynjari Níelssyni, að það er auðvitað ekki það sem hér er verið að ræða. Ef barn hefur orðið fyrir ofbeldi eða hætta er á ofbeldi, hvort sem það er kynferðislegt, líkamlegt eða andlegt, þá er það auðvitað allt annað mál. En ef búið er að komast að þeirri niðurstöðu að báðir foreldrar séu hæfir til að umgangast barnið, og við erum jú öll sammála um að það séu réttindi barnsins, og annað foreldrið hamlar því að svo geti orðið, þá er það tálmun. Slíkt er brot á réttindum barnsins, slíkt er ofbeldi gagnvart barninu.

Þess vegna vil ég alls ekki líta svo á að hér sé um einhvers konar jafnréttismál að ræða eða einhverja baráttu gegn kvenréttindum, alls ekki. Fyrst og fremst eigum við að horfa á hagsmuni barnsins.

Virðulegur forseti. Ég sagði líka áðan í andsvari að mér fyndist sú aðgerð sem kölluð er aðför, vera mjög ómannúðleg. Ég get með engum hætti séð að það þjóni hagsmunum barnsins. En ég er líka þeirrar skoðunar að ef við erum með lög og ramma þurfum við líka að vera með einhvers konar viðurlög til að sjá til þess að lögunum sé fylgt eftir. Hér hefur verið bent á að við erum með heimildir til dagsekta, en almennt er það mál manna að það virðist ekki þjóna sínum tilgangi. Því fellst ég á þau rök sem eru í þessu frumvarpi að tálmun, eins og ég hef farið yfir og eins og hún er útskýrð í frumvarpinu, sé í rauninni brot á réttindum barnsins. Þar af leiðandi ætti það að vera refsivert í samræmi við önnur refsiákvæði er lúta að slíkum brotum.

Með því er ég auðvitað ekki að segja að ég aðhyllist það að foreldri sé sett í fimm ára fangelsi, ekki frekar en að ég sagði hér fyrr í dag að ég legði til að þungunarrof væru framkvæmd á 22. viku. Við erum hér að tala um alger undantekningartilfelli og horfa á ákveðinn refsiramma. Ég tel reyndar að þetta frumvarp hafi batnað mjög frá því að það kom fram síðast vegna þess að horft var til þeirra athugasemda sem fram komu. Þannig að hér er um refsiramma að ræða sem varðar annaðhvort sektir eða fangelsi, jú allt að fimm árum, og er þá verið að horfa til þess ramma sem þekkist við sambærilegum brotum.

Umræðan hefur mikið snúist um stöðuna hjá sýslumanni og sáttameðferðirnar. Ég get tekið undir að það er auðvitað ekki ásættanlegt að fólk bíði — ég ætla ekki að segja fólk því að í rauninni snýst þetta ekki um foreldrana, en að börn bíði svo árum skiptir til að hægt sé að ná einhverri niðurstöðu um það hvernig samskiptum þeirra eigi að vera háttað við foreldra. Það er algjörlega óboðlegt. Þá tek ég heils hugar undir að við þurfum að beita okkur fyrir því að vinnubrögðin séu bætt. Eflaust þarf fjármuni líka. Eins og hv. þm. Helga Vala Helgadóttir kom aðeins inn á á undan mér, kann að vera að við þurfum að gera einhverjar breytingar á framkvæmdinni eða kerfinu sem slíku.

Ég minnist þess þegar ég var flutningsmaður á frumvarpinu á þarsíðasta þingi. Ég er og var þá jafnframt talsmaður barna á þingi. Þeir hópar sem haldið hafa utan um þessi mál, talsmenn barna, kölluðu okkur á fund sinn með fulltrúum sýslumanns því að þau höfðu verulegar áhyggjur af því að með því frumvarpi værum við með einhverjum hætti að ganga á réttindi barna. Þá var farið ágætlega yfir það, og það var mat fulltrúa sýslumanns sem vinna með þessi mál, að vel hefði tekist til með þessa breytingu á sáttameðferð. Þau töldu það. Það var afstaða þeirra. Síðan eru reyndar liðin tvö ár. Ég veit ekki hvort það hefur breyst að einhverju leyti, að málin hafi með einhverjum hætti orðið flóknari.

Mér finnst mikilvægt að við drögum það fram að við erum að tala um refsiramma eða refsiákvæði í algjörum undantekningartilfellum þegar fólk kemur sér annaðhvort ekki saman um niðurstöðu eða brýtur gegn því sem þegar hefur verið ákveðið. Auðvitað er það svo sem betur fer að í langflestum tilfellum geta foreldrar komið sér saman um þessa hluti með sómasamlegum hætti og hugsað fyrst og fremst um hagsmuni barnanna. Í einhverjum undantekningartilfellum er svo ekki. Ég hygg að sáttameðferðin, þær leiðir, hafi leitt það af sér að það sé þó betra en áður var að ná einhvers konar sátt þegar aðilar virðast ekki vera færir um það sjálfir.

Ég skal alveg taka undir að það er full ástæða til að horfa á þetta mál heildstætt.

Ein af rökunum fyrir því að ég er flutningsmaður á þessu máli eru að mér finnst eðlilegt að það séu viðurlög þegar brotið er gegn lögum. Þá vil ég nota tækifærið til nefna hér annað mál sem ég er jafnframt meðflutningsmaður á. Það er mál nr. 186, um viðurlög vegna hlutfalls kynja í stjórnum fyrirtækja. Það eru lög sem samþykkt hafa verið á Íslandi, hér í þingsal, um mikilvægi þess að kynjajafnrétti sé virt í stjórnum fyrirtækja, en við því eru engin viðurlög og virðist vera erfitt að fylgja því eftir að því sé sinnt.

Að sama skapi finnst mér líka mjög mikilvægt í slíkum málum að séu viðurlög. Einhverjum kann að finnast þetta vera útúrdúr en ég nefni þetta til að færa rök fyrir því að mér finnast það vera mikilvæg rök í málinu yfir höfuð að við séum með viðurlög þegar þeim lögum sem við höfum sett okkur er ekki fylgt.

Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu frekar. Ég veit að margir þingmenn bíða spenntir eftir því að komast að og mæla fyrir sínum málum. En eins og hér fyrr mælist ég til þess að umræðan um þetta mál og öll mál er snúa að börnum og réttindum þeirra séu hófstillt og að við hugum fyrst og fremst að réttindum barnanna sjálfra.