149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

barnaverndarlög.

126. mál
[22:24]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. ræðumanni kærlega fyrir ræðuna. Ég hef áhuga á að við stundum vandaða lagasetningu hér á Alþingi. Þetta frumvarp er því miður ótækt til afgreiðslu og ætti að vera afturkallað, eins og ég kom inn á í ræðu minni. Mun ég reyna á mínum stutta tíma að segja hvers vegna — og hefur það hvorki með konu eða karl að gera, né hán eða hvað það er, heldur hvernig um það er búið lögfræðilega séð.

Nú er hv. flutningsmaður löglærður maður og starfaði í áratugi sem lögmaður en hefur líkast til setið aðeins of lengi á þingi. Vegna þess að í 33. gr. a. barnalaga, nr. 76/2003, kemur fram að áður en krafist er úrskurðar eða höfðað mál um forsjá, lögheimili, umgengni, dagsektir eða aðför er foreldrum skylt að leita sátta samkvæmt þessari grein. Þetta er ákvæði sem var inni í barnalögunum og umgengnisþættinum var bætt við í lok desember 2012 — rétt áður en hv. þingmaður settist inn á þing, held ég, eða jafnvel eftir. Kannski var hv. þingmaður sestur á þing þarna.

Þessi mál sem við ræðum hér í dag byrja á sáttameðferð. Þannig að það er ekki rétt sem hv. þingmaður sagði að sáttameðferð væri löngu lokið.

Í öðru lagi er hér verið að leggja til refsingu — og þá er verið að leggja til refsingu. Það er ekkert verið að leggja til að viðurkennt sé að tálmun sé ofbeldi. Það er verið að leggja til refsingu. Þegar allir flutningsmenn segja að þeir séu í rauninni ekkert að leggja til refsingu veltir maður fyrir sér af hverju þeir séu þá að leggja til refsingu. Maður þarf að kannast við það sem maður er að leggja fram, frú forseti.

Annaðhvort er verið að leggja til refsingu eða ekki og ég sé ekki betur en að í þessu ótrúlega vanbúna frumvarpi, sem hefur ekkert með karla eða konur að gera heldur hefur með börn og réttindi þeirra að gera, sé verið að leggja til refsingu. (Forseti hringir.) Ég skal vera fyrst til að viðurkenna að það að meina barni um skýlausan rétt til samvista við báða foreldra er ofbeldi. Er það nóg, frú forseti?