barnaverndarlög.
Hæstv. forseti. Vandaða lagasetningu? Það er verið að segja: Ákveðin háttsemi er refsiverð. Það eru viðurlög við slíkri háttsemi. Alveg eins og við gætum bætt inn í hér að viðurlög séu við því að rassskella barn. Það er auðvitað þannig í dag þótt það sé ekki sérstaklega tekið fram. En það er bara verið að segja að ef þú tálmar, og það er ákveðin skilgreining á tálmun, er það brot.
Ég er ekki að segja að það séu ekki viðurlög. Ég er að segja hvernig framkvæmdin er. Að sjálfsögðu verður refsing á endanum ef engin önnur úrræði duga. Frumvarpið snýst um það og er svo sáraeinfalt, það er „bjútíið“ í þessu, eins og sagt er á útlensku, fyrirgefðu, hæstv. forseti.
(Forseti (BHar): Þingmálið er íslenska.)
Já, ég man það núna.
En fegurðin er í einfaldleikanum. Fegurðin snýst um að við viðurkennum það um slíka háttsemi.
Það kann að vera ágreiningur hvað teljist tálmun og hvort hún sé undir einhverjum kringumstæðum réttmæt. Ef hún er réttmæt kæra barnaverndaryfirvöld ekki til lögreglu. Það þarf ekkert að vanda sig meira í því.
Sáttameðferð? Auðvitað reyna menn, eins og alltaf ef koma fram mál … (HVH: Þetta er lögbundið.) Þarna er verið að rugla saman ákveðnum atriðum. Tálmun er tálmun. Ef það er brot þarf enga sátt um það brot. (HVH: Sáttameðferð er undangengin.) Nei. (HVH: Víst, það er lögbundið.) Nei. (Gripið fram í.)
(Forseti (BHar): Þingmaðurinn hefur orðið.)
Ég held að menn séu algerlega úti á túni hérna. Það er bara þannig að ef þú hefur fullframið brot snýst það ekkert um sáttameðferð. (Forseti hringir.) Þetta vita allir sem hafa verið eitthvað í þessu. Það er ekki flóknara en það.