staða barna tíu árum eftir hrun.
Herra forseti. Það gleður mig mjög að mæla fyrir tillögu til þingsályktunar um að Alþingi feli ríkisstjórninni að kanna með heildrænum hætti stöðu barna á Íslandi nú þegar tíu ár eru liðin frá hruni. Þingsályktunartillagan felur í sér að Alþingi álykti að fela ríkisstjórninni að skipa starfshóp til að kanna með heildrænum hætti stöðu barna á Íslandi tíu árum eftir hrun. Tillagan kveður á um að starfshópurinn hafi samráð við umboðsmann barna, Barnaverndarstofu, UNICEF á Íslandi, Velferðarvaktina, Samband íslenskra sveitarfélaga og önnur félagasamtök og stofnanir sem málefnið snertir. Starfshópurinn skili skýrslu til ríkisstjórnarinnar innan sex mánaða frá skipun starfshópsins en skýrslan verði kynnt Alþingi eigi síðar en fyrir lok 149. löggjafarþings.
Eins og fram kemur í greinargerð málsins hafa borist athugasemdir barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna um áhrif efnahagshrunsins á Íslandi á börn og fjölskyldur þeirra, sérstaklega efnaminni fjölskyldur. Jafnframt er í athugasemdunum lögð áhersla á mikilvægi þess að með vænkandi hag ríkissjóðs verði leiðréttur sá niðurskurður sem var á sviði velferðar-, heilbrigðis- og menntamála í kjölfar hrunsins. Nú þegar tíu ár eru liðin frá efnahagshruninu er ástæða til að kanna hvort börn hafi notið bætts efnahagsástands landsins, en ekki liggur fyrir greining á stöðu þeirra barna sem eru fædd á árunum 1990–2011. Þó má þess geta að barnaréttarnefndin hefur ítrekað bent á að það skorti heildstætt kerfi um söfnun, vinnslu og greiningu gagna um stöðu barna hér á landi, enda er slík gagnasöfnun forsenda þess að raunverulega sé hægt að vinna að auknu jafnræði meðal barna á Íslandi.
Í upphafi hrunsins var mikið rætt um möguleg langtímaáhrif þess á börn. Því er full ástæða til að skoða stöðu barna á þessu tíu ára tímabili, 2008–2018 — ég segi 2018 því þá var þessari þingsályktunartillögu sem hér um ræðir dreift þannig að við erum komin upp í 11 ár — og meta áhrif hrunsins á stöðu þeirra og líðan, svo sem út frá félagslegum, sálrænum og efnahagslegum áhrifum, sem og hvar þjónusta við börn var skorin niður og hvort úrbætur hafi átt sér stað á þessu sviði. Slík könnun nær jafnframt til víðtækra þátta og þarf sérstaklega að hafa í huga ýmsar breytur, svo sem kyn, uppruna, fötlun, efnahagslega stöðu, búsetu, fjölskyldumynstur o.s.frv. Mikilvægt er að leggja mat á áhrif hrunsins á börn og grundvallarkerfi þjóðfélagsins, m.a. í velferðar-, heilbrigðis- og menntakerfinu. Aðgerðir samkvæmt þingsályktunartillögu þessari eru jafnframt mikilvægt framlag til að nýta tímamótin nú þegar tíu ár eru liðin frá hruni til að safna saman reynslu sem fengist hefur á framangreindu tímabili og til þess að líta fram á veginn og meta hvort hrunið hafi hugsanlega haft áhrif á líf þessarar kynslóðar og þá hvernig, þ.e. barna fæddra á árunum 1990–2011, t.d. innan skólasamfélagsins og á vinnumarkaði.
Til eru ýmsar rannsóknir og greiningar sem gerðar hafa verið á stöðu og líðan barna á undanförnum árum sem þó virðist aldrei hafa verið lagt heildstætt mat á með þeim hætti sem hér er lagt til. Ég vil þó nefna rannsóknarskýrslu um lífskjör og fátækt barna á Íslandi 2004–2016, sem unnin var af Kolbeini Stefánssyni félagsfræðingi fyrir Velferðarvaktina og kynnt var í febrúar sl. Í rannsókn Kolbeins er þróun lífskjara og lífsgæða barna rakin yfir tímabilið 2004–2016 með megináherslu á þrjú tímabil, þ.e. uppgangstímabilið frá 2005–2007, árin um og eftir hrun frá 2008–2011 og svo endurreisnartímann frá 2012–2016. Það er góð skýrsla og getur verið afar nytsamleg við þá vinnu sem ríkisstjórninni er falið að inna af hendi í þessari þingsályktunartillögu.
Áhersla er lögð á að við gerð skýrslunnar sem beðið er um að unnin verði í þessari tillögu, verði, eins og áður segir, haft samráð við grundvallarstofnanir og embætti sem koma að réttindum barna og högum þeirra. Þá yrði líka horft til rannsókna um hagi og líðan barna og ungmenna á vegum rannsóknarmiðstöðvarinnar Rannsóknir og greining, alþjóðlegrar rannsóknar um heilsu og lífskjör skólanema sem heitir á ensku, með leyfi forseta, Health Behaviors in School-Aged Children frá HBSC, skýrslu UNICEF frá 2016 um börn sem líða efnislegan skort, rannsókna og skýrslna Rannsóknarstofnunar í barna- og fjölskylduvernd við Háskóla Íslands, upplýsinga frá Hagstofu Íslands, kannana og athugana umboðsmanns barna og Barnaverndarstofu og einnig skýrslna eða upplýsinga sem hafa komið fram á vegum velferðarsviða sveitarfélaga, svo sem rannsóknir velferðarsviðs Reykjavíkurborgar um hagi og líðan grunnskólanemenda.
Herra forseti. Ég vil vekja athygli á því að þessi þingsályktunartillaga bætist í hóp góðra tillagna hv. þingmanna á yfirstandandi þingi sem snúast um hag barna og réttindi þeirra. Þar nefni ég þingsályktunartillögu hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar um undirritun og fullgildingu þriðju valfrjálsu bókunarinnar við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og þingsályktunartillögu hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur um aðgerðaáætlun fyrir árin 2019–2022 til að styrkja stöðu barna og ungmenna. Ég held að sú þingsályktunartillaga rími einmitt mjög vel sem framhald af þeirri ágætu þingsályktunartillögu sem hér er mælt fyrir.
Að lokum vil ég þakka kærlega talsmönnum barna á Alþingi sem öll eru meðflutningsmenn mínir á þessari ágætu þingsályktunartillögu og það sýnir svart á hvítu einhug og vilja þingmanna þvert á flokka um mikilvægi þessa máls.