149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

staða barna tíu árum eftir hrun.

256. mál
[23:06]
Horfa

Hjálmar Bogi Hafliðason (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég fann mig knúinn til að standa aðeins á fætur og koma upp í ræðustól. Hins vegar get ég sagt bara til gamans að þegar maður stendur í kennslustund og segir yfir nemendahópinn: „Sko, fyrir hrun …“ þá gera nemendur, sem eru börn í dag, sér enga grein fyrir því. Þau miða ekki við neitt fyrir hrun. Ég vil koma því á framfæri að við drögum úr því að búa of mikla hrunumræðu. Ég ýja bara að því hér þó svo að ég ætli ekki að draga úr áhrifum hrunsins. Ég vil að þið veitið því athygli.

Af því að þingmaðurinn orðaði það lauslega — mér heyrðist hún í upptalningu sinni tala um Rannsóknir og greiningu. Ég vil skora á þingheim að kynna sér þær niðurstöður sem þar eru. Rannsóknir og greining hafa kannað hag ungs fólks síðan 1992 og er þar að finna gríðarlegt magn af upplýsingum. Þótt ekki væri nema að þessi starfshópur skoðaði hvort einhver breyting hafi orðið við hrunið, svo ég noti nú þá skilgreiningu. Varð einhver breyting í kringum 2007, 2008, 2009? Fóru línuritin eitthvað upp á við eða niður? Fóru súlurnar eitthvað upp eða niður? Því að þar má finna upplýsingar um líðan, hreyfingu, samveru með foreldrum. Upplifa unglingar sig meira eina nú? Eru þeir minna með foreldrum sínum en búa bara inni í sínu herbergi með sinn tölvuskjá? Ég vil að menn velti því aðeins fyrir sér: Tölum við við börn í dag eða töluðum við við börnin þá?