staða barna tíu árum eftir hrun.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að ég geti að hluta tekið undir með þingmanninum um að við þurfum ekki að vera föst í hruninu sjálfu, en ég held samt sem áður að það hjálpi okkur og öllum þeim sem vinna að málefnum barna að hafa þennan samanburð og kanna hvort eitthvað hafi breyst á árunum eftir hrun og hvað það var nákvæmlega.
Af því að hv. þingmaður nefnir hina góðu rannsóknamiðstöð Rannsóknir og greiningu þá tek ég undir með honum um mikilvægi þess starfs sem þar hefur verið unnið og þeirra rannsókna og greininga sem unnar hafa verið af hálfu þeirrar stöðvar. Til að mynda þegar kemur að áfengisneyslu og líðan barna og ungmenna eru þær upplýsingar sem rannsóknamiðstöðin Rannsóknir og greining hefur safnað saman um árabil, verið gríðarlega gott nesti inn í forvarnastefnu og forvarnamál hér á landi. Auðvitað hafa þau mál vakið mikla athygli og sá góði árangur sem náðst hefur þar. Þær breytingar sem orðið hafa á áfengis- og vímuefnaneyslu ungmenna sem Rannsóknir og greining hefur sýnt fram á og kynnt hafa vakið mikla athygli út fyrir landsteinana.
En líkt og hv. þingmaður minntist á aðeins undir lokin á andsvari sínu þá hafa sumir fræðimenn greint það í einhverjum tölulegum gögnum að á árunum eftir hrun hafi líðan sumra barna og ungmenna, þeirra sem ekki bjuggu við efnislegan skort, að einhverju leyti batnað vegna þess að þá hafi samvera foreldra og barna og ungmenna aukist miðað við það sem áður var. Það væri líka áhugavert að greina (Forseti hringir.) þau gögn og nýta þau við áframhaldandi vinnu.