staða barna tíu árum eftir hrun.
Hæstv. forseti. Ég velti fyrir mér í hverju samanburðurinn ætti að felast, því að eins og þingmaðurinn benti réttilega á sjálf er ekkert víst að hagur ungs fólks hafi endilega verið betri fyrir hrun en jafnvel eftir hrun. Og af því að þingmaðurinn nefndi réttilega neyslu á áfengi þá hefur t.d. talan yfir unglinga í 10. bekk sem drukkið hafa síðastliðna 30 daga, fallið úr 42% árið 1995 niður í 3% árið 2016. Ég túlka það þá þannig að þessi vinnuhópur sé í rauninni að rannsaka tíðarandann þá og tíðarandann í dag.
Þá er spurning hvort hópurinn ætli að koma með einhverjar tillögur til úrbóta, því að verið er að rannsaka menningu, verið er að rannsaka tíðarandann og menninguna eins og hún er hjá ungu fólki og foreldrum og samfélaginu öllu gagnvart hagsmunum barna. Ég fagna því að sjálfsögðu að þessi hópur komi hér fram og rannsaki hagi ungs fólks áfram.
Að lokum vil ég hvetja þingheim allan til að fara inn á www.rannsoknir.is og kynna sér hag ungs fólks því að það er gríðarlega áhugavert að skoða allt það gagnasafn sem þar er.