staða barna tíu árum eftir hrun.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir andsvarið og þann áhuga sem hann sýnir hér á því að kanna nánar og ítarlegar hag barna og ungmenna. Ég vona að sá áhugi smitist yfir á aðra þingmenn.
Af því að hv. þingmaður nefndi áfengis- og vímuefnaneyslu og hversu ofboðslegum stakkaskiptum þau mál hafa tekið síðustu árin, má líka halda því til haga að sá árangur hefur náðst fyrir nánast grettistak skóla- og foreldrasamstarfs og svo opinberra stofnana. Við verðum að varðveita og passa vel upp á þann árangur vegna þess að það hefur sýnt sig að líðan barna og unglinga hefur batnað þegar kemur að neyslu áfengis og vímuefna og það hefur að sjálfsögðu gríðarlega mikil áhrif á hag barna.
Sá árangur hefur líka, eins og ég minntist á áðan, vakið mikla eftirtekt erlendis. Ég held að við ættum að velta því fyrir okkur hvort við ættum ekki að bera þann boðskap út svolítið hressilega, af því að við viljum nú oft stæra okkur af ýmsum hlutum hér á Íslandi. Sá gríðarlega góði árangur sem Íslendingar hafa náð í forvarna- og lýðheilsumálum þegar kemur að neyslu áfengis og vímuefna meðal barna og ungmenna, er afar eftirtektarverður.
Mig langar samt undir lokin að ítreka að þingsályktunartillagan byggir líka á athugasemdum barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna um að könnuð verði frekar en gert hefur verið áhrif efnahagshrunsins á Íslandi á börn og fjölskyldur þeirra, sérstaklega efnaminni fjölskyldur. Í þeim athugasemdum er lögð áhersla á mikilvægi þess að á þessum síðustu árum eftir hrun, sem við höfum (Forseti hringir.) blessunarlega verið að upplifa núna að undanförnu, hafi (Forseti hringir.) hagur ríkissjóðs farið batnandi — ég veit að (Forseti hringir.) það gleður herra forseta að heyra það — og að (Forseti hringir.) við sjáum hinn góða hag ríkissjóðs líka birtast í velferðar-, (Forseti hringir.) heilbrigðis- og menntamálum í málefnum barna og ungmenna.
(Forseti (WÞÞ): Forseti biður hv. þingmenn vinsamlegast að virða ræðutímann.)