149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

sjúkratryggingar.

293. mál
[23:15]
Horfa

Flm. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Herra forseti. Ég flyt frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, og þetta snýst um endurgreiðslu kostnaðar. Við fyrstu sýn væri hægt að segja að þetta væri tæknilegt mál en breytingartillagan snýst aðeins um eina grein, þ.e. að á eftir 1. mgr. 38. gr. laganna komi ný málsgrein, svohljóðandi:

„Uppfylli sjúkratryggður skilyrði 23. gr. a til að sækja sér heilbrigðisþjónustu í öðru aðildarríki EES-samningsins skal honum greiddur kostnaður við þá þjónustu hér á landi þótt samningur um heilbrigðisþjónustu sé ekki fyrir hendi, samanber IV. kafla. Skilyrði endurgreiðslu er að þjónusta sé veitt af aðila sem uppfyllir allar kröfur sem til slíkrar þjónustu eru gerðar og kostnaður við þjónustuna sé ekki meiri en henni myndi fylgja í öðru EES-ríki. Sjúkratryggingastofnun skal síðan gefa út reglur um framkvæmd þessa ákvæðis.“

Tæknilegt mál, já, að vissu leyti, en hápólitískt því að málið snýst einmitt um endurgreiðslu vegna sjúkrakostnaðar sjúklinga sem eru á biðlista — og þetta eru vel að merkja einstaklingar sem eru búnir að vera á biðlista til að komast á biðlista til þess að geta hugsanlega komist til læknis hérna heima. Þetta snýst um endurgreiðslu á kostnaði við að fara í aðgerðir hér til sjálfstætt starfandi aðila sem uppfylla öll skilyrði og hætta að setja fjármagn, sem er óþarfakostnaður, í að senda sjúklinga til útlanda til að fá þá þjónustu sem þeir eiga skilið. Þetta mál snýst sem sagt um að reyna að minnka á biðlistum sem allra fyrst.

Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að málið er snúið meðal ríkisstjórnarinnar og reyndar eru mörg mál eftir daginn í dag snúin meðal ríkisstjórnarflokkanna. Mér er spurn: Af hverju gera Sjálfstæðismenn ekki eins og í málinu fyrr í dag um kvenfrelsi og sjálfsákvörðunarrétt kvenna og fara sínar leiðir í málum varðandi biðlista? Sjúklingar hér heima eru oftar en ekki búnir að líða miklar kvalir, þeir eru ungir, miðaldra, þetta er eldra fólk í misgóðu ástandi til að ferðast. Af hverju er ekki búið að fara í það mál að segja: Gott og vel, við vitum þetta og berum virðingu fyrir því að hæstv. heilbrigðisráðherra er að móta stefnu í heilbrigðismálum til næstu ára. Við vitum alveg hverjar áherslur Vinstri grænna eru í þeim efnum. Þau vilja ekki leita til aðila utan opinbera kerfisins. Það er pólitísk hugsun út af fyrir sig sem ég ætla að bera virðingu fyrir þótt ég sé ekki sammála henni.

En meðan sá ágreiningur ríkisstjórnarflokkanna er ekki leystur, hvað eigum við þá að gera? Eigum við bara að bíða? Eru skilaboðin: Kæru vinir, okkur finnst þetta leitt, bryðjið pillur og bíðið þangað til við erum búin að leysa úr ágreiningnum? Þess vegna höfum við í Viðreisn, ásamt fleiri þingmönnum, lagt fram þetta mál. Ég lagði málið fram 2. nóvember á síðasta ári. Málið er umdeilt og hefur ekki fengið að komast á dagskrá fyrr en núna síðla kvölds um miðjan maí, en það er engu að síður þakkarefni að það skuli loksins hafa hlotið náð fyrir forsætisnefndinni að setja málið á dagskrá. (Gripið fram í.) — Já.

Hér er skiptir máli að hafa hugfast að við í Viðreisn lögðum einnig til breytingartillögu á fjárlagagerðinni til að koma strax til móts við nákvæmlega þau sjónarmið, af því að við vissum og skynjuðum að það var ekkert rosalega mikill vilji hjá öllum stjórnarflokkunum til að ræða þau mál. Við lögðum fram breytingartillögu við fjárlögin upp á 200 milljónir, að fullu fjármagnaðar, til þess að koma strax til móts við þennan vanda, til þess að hægt væri að auka lífsgæði fólks og fara í aðgerðir hjá sjálfstætt starfandi læknum sem uppfylla skilyrðin, sama hvort það er á klíník eða annars staðar, að hægt sé að fara í aðgerðir heima fyrir. Við lögðum fram tillögu upp á 200 milljónir meðan ríkisstjórnin væri að koma sér saman um aðferðafræðina í þeim efnum. En allir þingmenn stjórnarflokkanna, bæði þeir flokkar sem kenna sig við sósíalisma en ekki síður þeir flokkar sem hafa kennt sig við frelsi einstaklinganna á góðri stundu, höfnuðu henni. Það tækifæri hefur því ítrekað verið lagt á borð en ekki notað.

Ég hefði haldið að til að mynda hv. formaður fjárlaganefndar hefði kosið að sjá ljósið hvað þetta varðar, að sjá að hægt sé að spara með því að gera þetta svona, alla vega meðan ríkisstjórnin er að koma sér saman um það, að loka ekki augunum fyrir því að hægt sé að leita til sjálfstætt starfandi aðila. Það er enginn að tala um að ekki eigi að vera jöfn tækifæri til heilbrigðisþjónustu því að við vitum — og við höfum mýmörg dæmi um það í heilbrigðiskerfinu, í menntakerfinu — að opinberar stofnanir, opinberir aðilar sem og einkaaðilar geta veitt vel skilgreinda opinbera þjónustu. Við sjáum það víða í heilbrigðiskerfinu. Í dag eru til að mynda, og sem betur fer, tannlækningar greiddar upp að 18 ára aldri. Eru þær allar ríkisvæddar? Eru það allt saman opinberar stofnanir sem sjá um tannlækningar? Nei, við leitum til sjálfstætt starfandi tannlækna. Það er hægt að leita víða. Við vitum um ýmsar aðgerðir sem tengjast augum, um kvensjúkdómalækningar. Við vitum að í menntakerfinu erum við með öfluga háskóla sem eru starfræktir af sjálfstæðum aðilum, stofnunum, einkaréttarlegum stofnunum, og gera það vel. Jöfn tækifæri til náms eru tryggð með öðrum hætti, m.a. með jöfnum aðgangi að lánasjóðnum.

Það er í rauninni algerlega óskiljanlegt þegar ríkisstjórnin hefur verið vel á annað ár að störfum að ekki hafi verið komið til móts við það að stytta biðlista almennilega.

Ég ætla engu að síður að láta heilbrigðisráðherra njóta sannmælis. Ég veit að hún hefur beitt sér fyrir auknu fjármagni inn á heilbrigðisstofnanirnar, inn á Landspítala – háskólasjúkrahús. En við vitum líka að þá er öðrum aðgerðum ýtt til hliðar. Þá er öðrum aðgerðum seinkað. Við höfum margar fréttir þess efnis. Þannig má segja að vissu leyti að verið sé að pissa í skóinn sinn hvað þetta varðar.

Við í Viðreisn leggjum gríðarlega áherslu á að í þessu tilviki, þegar biðlistarnir eru svona langir — það eru yfir 1.000 manns á biðlista í liðskipta- og mjaðmaaðgerðir — sé komið til móts við þann hóp og það strax. Það er hægt með einfaldri breytingu á lögum og líka með einfaldri hugarfarsbreytingu hjá ríkisstjórninni.

Það er vert að draga fram að í 20. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins á sjúkratryggður einstaklingur rétt á því að sækja sér heilbrigðisþjónustu í öðru EES-landi sé bið hans eftir nauðsynlegri meðferð í heimalandi eftir greiningu orðið lengri en viðmiðunartími nauðsynlegrar meðferðar. Við sjáum fólk fara í hrönnum til Svíþjóðar og vel að merkja ekki til opinberra stofnana í Svíþjóð heldur til einkastofnana, stofnana í einkarekstri. Það er mikil kaldhæðni í því að íslenskir læknar skuli fljúga út og gera aðgerðirnar úti af því að ekki má gera þær hér heima. Það er miklu meira en eitthvað skrýtið í þessum kýrhaus. Þetta er bara ekki í lagi.

Gildi þessarar Evrópureglugerðar var staðfest hér á landi á sínum tíma, eins og gengur um gildistöku slíkrar reglugerðar, og var sett inn í almannatryggingar. Embætti landlæknis setti reglur um slík viðmiðunarmörk 15. júní 2016. Ásættanleg bið eftir aðgerð og meðferð hjá sérfræðingi er þar ákveðin 90 dagar frá greiningu. Að þeim tíma liðnum stofnast réttur sjúkratryggðs einstaklings til að leita sér þjónustu annars staðar á EES-svæðinu. Það er alkunna að hér á landi hafa um árabil verið langir biðlistar eftir ýmsum aðgerðum og ekki eru horfur á að þeir styttist verulega í náinni framtíð í ýmsum greinum, t.d. í liðskiptaaðgerðum. Vegna þessa hafa allmargir, eins og ég hef þegar komið inn á, sem sjúkratryggðir eru á Íslandi fengið slíkar aðgerðir framkvæmdar erlendis á síðustu árum og kostnaður við þær verið greiddur af Sjúkratryggingum Íslands ef skilyrði um biðtíma hefur verið uppfyllt — vel að merkja, biðtími eftir að komast á biðlista.

Sú undarlega staða er uppi að Sjúkratryggingar Íslands telja sér ekki heimilt að greiða kostnað við sams konar aðgerð hér á landi enda þótt hún hafi verið gerð af aðila sem uppfyllir öll lagaskilyrði til að framkvæma hana: Nei, kæri vinur, þú uppfyllir ekki allt og tikkar ekki í rétta hugmyndafræðilega boxið. Farðu út í aðgerðina þar, ekki hérna heima. Þetta eru náttúrlega glötuð skilaboð.

Sú afstaða hefur í reynd leitt til þess að kostnaður við aðgerðirnar eru miklu meiri en nauðsyn krefur því að aðgerðir framkvæmdar erlendis eru mun dýrari en sams konar aðgerðir framkvæmdar utan ríkisspítalanna hér á landi. Auk þess fellur ferða- og uppihaldskostnaður á sjúkratryggingarnar og í mörgum tilvikum einnig kostnaður vegna fylgdarmanns. Það er oftar en ekki sem slíkt kemur upp á.

Annað sem kemur oft upp og er mismunun, ekki síst gagnvart eldra fólki sem þarf verulega á slíkum aðgerðum að halda, er að sumt fólk hefur einfaldlega ekki heilsu til að ferðast til útlanda út af þessu eða er með viðbótarsjúkdómsgreiningar sem gera það að verkum að það fær ekki heimild til að fara út í aðgerð. Hvað er til ráða? Hver eru þá skilaboðin? Jú: Bíðið bara lengur.

Mér finnst þetta orðið þannig að viðhorf gagnvart sjálfstætt starfandi aðilum er, ég ætla ekki að segja algerlega fjandsamlegt en menn eru andsnúnir sjálfstætt starfandi aðilum og stofnunum, einkaréttarlegum stofnunum á Íslandi. Það er hægt að taka mörg dæmi. Krabbameinsfélagið var nefnt á þingi fyrr í dag. Þeim er ekki svarað almennilega. Það er verið að reyna að draga helstu grunnstoðir undan félaginu, setja fram ákveðnar efasemdir um starfsemi félags sem hefur sinnt skoðun og skimun með góðum hætti í gegnum tíðina. Það vitum við konur sem höfum leitað þangað.

Við sjáum líka Vog. Vogur getur sinnt miklu fleiri en eru á biðlistum til þess að komast í meðferð. Eigum við að tala um unga fólkið? Því er ekki sinnt. Nýlega benti framkvæmdastjóri Vogs á nákvæmlega þetta, að þau geta tekið við fleirum, en það er ekki hlustað á þarfir um aukna þjónustu og aukinn stuðning.

Ég velti fyrir mér í svona stjórnarsamstarfi hvenær til að mynda Sjálfstæðisflokkurinn spyrnir við fótum í þessu máli. Nú hefur það liðist í hátt á annað ár að það eru ekki nein úrræði. Hvenær ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að segja: Kæri heilbrigðisráðherra, við skiljum það sem þú ert að gera en við ætlum ekki að láta fólk bíða lengur. Þess vegna ætlum við að setja tímabundið fjármagn í þetta meðan við erum að koma okkur að niðurstöðu um það hvernig við ætlum að framkvæma þessar aðgerðir og fjármagna.

Af hverju er það ekki hægt? Það eru mér mikil vonbrigði að upplifa að það er eins og það hafi verið alger uppgjöf þegar kemur að heilbrigðismálum af hálfu annarra stjórnarþingmanna en Vinstri grænna. Ég undirstrika að ég ber mikla virðingu fyrir þeim krafti og þeirri elju sem einkennir heilbrigðisráðherra þótt ég sé oft allsendis ósammála henni varðandi nálgun á heilbrigðismálin sem slík.

Ég vil biðja fólk að hafa það hugfast að ýmist aðilar geta veitt skilgreinda opinbera þjónustu. Við ógnum ekki jöfnum tækifærum til heilbrigðisþjónustu með því að viðurkenna það. Við skulum hins vegar viðurkenna þann vanda sem við stöndum frammi fyrir þegar kemur að því að stytta biðlistana. Það þýðir ekki að setja málin í nefnd, aftur í nefnd, skoða þau aðeins betur, því að fólkið sem er á biðlistunum er sumt hvert búið að bíða mánuðum saman og jafnvel svo árum skipti. Það gengur ekki.

Ég vil því hvetja ríkisstjórnina, og ég beini orðum mínum ekki síst til þeirra sem vilja á hátíðarstundum kenna sig við frjálslyndi, frelsi, víðsýni, til að tala fyrir því að þetta mál verði leyst, að fólk sem er á biðlistum fái önnur svör en: Kæru vinir, bíðið, við erum aðeins að pæla betur í því hvernig við ætlum að klára málin.

Það gengur ekki. Það er ábyrgðarhluti af hálfu ríkisstjórnar Íslands að senda út slík skilaboð.

Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að lítið er eftir af þingi og þetta mál verður ekki klárað. En ríkisstjórnin sjálf getur engu að síður stigið fram og gert það á þann hátt og með þeim tólum og tækjum sem hún hefur alla jafna yfir að ráða.

Ég ítreka hvatningu mína til þeirra sem vilja leggja málinu lið. Það er hægt að breyta þessu. Það þarf bara vilja og kraft. Við í Viðreisn erum tilbúin til að styðja ríkisstjórnina og þá flokka innan hennar sem vilja tala fyrir málinu með ráðum og dáð. Við hvetjum alla á þingi til að ýta við því að þetta mál fari af stað, þannig að við sjáum biðlistana styttast og fólk fá úrlausn mála sinna, ekki einhvern tímann í óskilgreindri framtíð heldur sem allra fyrst.