149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

störf þingsins.

[13:35]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi fjármálaráðherra og formaður Viðreisnar, er öflugur samfélagsrýnir. Hann skrifaði grein í Morgunblaðið í dag sem mér finnst eiga erindi hingað. Benedikt bendir á að ein áhrifamesta tækni stjórnmálamanna sé að benda á óvin og skapa ótta. Óvinurinn geti verið raunverulegur maður, þjóð, sjúkdómur eða jafnvel hugmynd eða hlutur. Hér koma upp í hugann milliríkjasamningar og alþjóðaviðskipti, útlenskt fólk og alls konar fólk, sjálfsákvörðunarréttur kvenna og orkupakkar.

Það er alls ekki nauðsynlegt þegar þeirri aðferðafræði er beitt að hætta skapist eða rökstuddar ástæður séu til að gera ráð fyrir að svo verði, einfaldlega að það geti verið eða geti orðið. Flestir eru skynsamir en gefa sér ekki tíma til að kynna sér öll mál ofan í kjölinn og þess vegna er auðvelt að ýta undir tortryggni og já — jafnvel hræðslu.

Kannski í tilefni dagsins: Hér á eftir munum við ekki ræða lög sem leiða til þess að einn daginn syndi útlendingur upp að suðurströnd Íslands í kafarabúningi með rafmagnssnúru og fái að stinga í samband með uppáskrifaða heimild frá Evrópusambandinu.

Benedikt nefnir í grein sinni dæmi um stjórnmálamenn og hópa sem hafa náð árangri við að beita slíkri tækni. Þeir eru vissulega fleiri og flestir eiga það sammerkt að fá falleinkunn í dómi sögunnar. Það er gott og blessað. Það væri mun betra ef sú falleinkunn yrði gefinn strax og við þurfum að finna leiðir til þess með hagsmuni íslensks samfélags í huga. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)