149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

störf þingsins.

[13:37]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Nýlega hefur verið mér hugleikið hugtakið frelsi sem þykir flókið og dularfullt hugtak í íslenskri orðræðu að jafnaði af minni reynslu. Sitt sýnist hverjum um hvað það sé o.s.frv. en oftast heyrir maður þó í samtölum sínum við Íslendinga talað um að Íslendingar séu svo frjálslyndir, þetta sé svo frjáls þjóð. Ég mótmæli því, virðulegi forseti. Íslendingar eru upp til hópa ekkert frjálslyndir. Ísland er ekkert frjálslynt land. Við erum með tvö atriði sem við getum státað okkur af, reyndar aðeins minna og minna þessa dagana, þurfum að gefa í aftur, og það er jafnrétti og réttindi samkynhneigðra. Þar stöndum við vel eða höfum gert, þurfum aðeins að spýta í lófana aftur þar. Við erum að tapa samkeppninni.

Eiginlaga alls staðar annars staðar er frelsi einhvers konar fúkyrði, einhvers konar vá. Um leið og maður fer að tala um tjáningarfrelsi er það fyrsta sem gerist í samtalinu að viðkomandi byrjar að lista upp allar þær mikilvægu ástæður fyrir því hvers vegna þarf að passa að takmarka þetta og þetta og þá má kannski byrja að tala um hvað frelsi sé.

En ef við ætlum að vera frjálslynd þjóð, ef við ætlum að vera frjálslynt fólk, þá verðum við að tileinka okkur það hugarfar að frelsið sé grunngildi sem krefjist ekki undirliggjandi réttlætingar, á sama hátt og lífið eða hamingja, eitthvað sem við aðhyllumst frá hjartanu, alveg í grunninn. Við þurfum ekki að réttlæta neitt sérstaklega. Eins og með allt annað í lífinu þá getur vissulega þurft að setja takmarkanir, en það á ekki að vera það fyrsta sem við reynum að gera. Það á ekki að vera það fyrsta sem okkur dettur í hug. Við eigum að vilja frelsið, við eigum að fækka takmörkununum.

Mér finnst þetta sérstaklega áberandi í umræðu um tjáningarfrelsi. Ég minni á að það er bannað að flytja þjóðsönginn í annarri en upprunalegri mynd, svona af því bara. Það fór í taugarnar á einhverjum forsætisráðherra einhvern tímann. Þannig eru Íslendingar. Frjálslyndir, aldeilis ekki, virðulegi forseti. Við ættum að breyta því. Það breytist fyrst hér.