149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Ég lagði þingsályktunartillögu fyrir þingið í gær ásamt þingmönnum úr Samfylkingu og Pírötum um að kanna viðhorf fólks í Þýskalandi, Bandaríkjunum, Kanada, Frakklandi og Bretlandi um áframhaldandi veiðar okkar Íslendinga á hval. Í þingsályktunartillögunni felst að skoða eigi hvaða áhrif hvalveiðar kunni að hafa á sölu annarra afurða frá Íslandi. Hvaða áhrif hefur það á okkar verðmætu sjávarafurðir eða til að mynda komu ferðamanna hingað til Íslands?

Það er sjálfsagt og eðlilegt að skoða þessa mikilvægu markaði eftir þá algerlega óskiljanlegu ákvörðun sjávarútvegsráðherra að hefja veiðar á langreyði á ný. Við erum eina landið í heiminum sem heimilað hefur veiðar á langreyði að nýju og það er algerlega óskiljanlegt.

Ég vil leyfa mér að vitna í góðan leiðara Fréttablaðsins fyrir ekki svo löngu þar sem segir:

„Furðu sætir að jafn umdeild ákvörðun sé byggð á jafn veikum grunni og raun ber vitni þegar orðspor Íslands í útlöndum er undir. Ísland hefur skotist upp á stjörnuhimininn á síðustu árum, ekki síst fyrir tilstilli samfélagsmiðla. Fyrir vikið eigum við verðmætt vörumerki — merki sem þarf að umgangast af varúð á tímum sem ein færsla frá áhrifamiklum aðila á samfélagsmiðlum getur stofnað umfangsmiklum viðskiptahagsmunum í hættu á augabragði.“

Þetta er skrifað í kjölfarið þess að Lewis Hamilton, ökuþórinn knái, birti færslu varðandi hvalveiðar.

Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að þetta mál er umdeilt og á helst að þagga það niður. Við finnum varðandi þau mál sem eru erfið innan ríkisstjórnarinnar að helst á að ýta þeim hægt og rólega til hliðar. Ég vil engu að síður hvetja atvinnuvegaráðuneytið til að fara í þessa könnun. Ég veit að ég fæ ekki þessa þingsályktunartillögu á dagskrá en ráðuneytið getur sjálft hafið að eigin frumkvæði að því kanna þetta viðhorf og skoða það þannig að við getum kortlagt nákvæmlega hvaða hagsmunir eru í húfi, því að það eru ríkir hagsmunir í húfi. Bæði varðandi dýravernd og eins varðandi markaðslega hagsmuni okkar Íslendinga í útlöndum.