störf þingsins.
Herra forseti. Það er margt sem við getum gert til að bregðast við loftslagsbreytingum. Í því samhengi má m.a. minna á að í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar segir að svartolíu skuli fasa út og í stjórnarsáttmála er stefnt að banni við notkun svartolíu í efnahagslögsögu Íslands.
Í næstu viku verður haldinn fundur Marine Environment Protection Committee í London en mikilvægt er að fulltrúar okkar þar fylgi stefnu Íslands fast eftir, einkum í ljósi þess að magn koltvíoxíðs í lofti fór í fyrsta sinn frá upphafi mælinga yfir 415 milljónarhluti.
Herra forseti. Annars langaði mig að nýta þetta tækifæri til að vekja athygli á verkefni Umhverfisstofnunar, Græn skref ríkisstofnana, sem svo skemmtilega vill til að Alþingi er aðili að. Tilgangur verkefnisins er að efla vistvænan rekstur ríkisins og minnka umhverfisáhrif. Framkvæmd verkefnisins er einföld og eiga allar stofnanir ríkisins að geta tekið þátt. Þar er haldið grænt bókhald þar sem safnað er tölulegum upplýsingum um innkaup stofnunarinnar.
Með markvissri færslu slíks bókhalds geta stofnanir gert sér betur grein fyrir keyptu magni og eðli innkaupa og sett sér þannig mælanleg markmið um að draga úr notkun og minnka kolefnisfótspor sitt.
Á heimasíðu verkefnisins eru ýmsar skemmtilegar upplýsingar, til að mynda árið 2017 var það Alþingi sem notaði mest magn af heitu vatni á stöðugildi en ótrúlegt en satt var Alþingi aðeins í þriðja sæti yfir notkun á pappír sama ár.
Herra forseti. Þetta er fyrirmyndarverkefni þó að ég myndi vilja sjá það ganga enn lengra og setja nákvæmari upplýsingar um kolefnislosun af keyptri vöru og þjónustu sem og að setja verð á kolefni þannig að forstöðumenn stofnana geti áttað sig á raunverulegum kostnaði við losunina. Því miður eru aðeins 66 ríkisstofnanir af rúmlega 160 þátttakendur í verkefninu og vil ég hvetja forstöðumenn þeirrar ríkisstofnanna sem ekki eru þátttakendur í því að bæta úr því sem fyrst og gera það af fullum krafti. Við þurfum öll að leggja okkar af mörkum til að minnka losun og minnka sóun.