störf þingsins.
Hæstv. forseti. Mig langar til að koma aðeins inn á flugmál, eins og reyndar oft áður. Ég stóð hér í ræðustól og ræddi þessi mál fyrst 26. apríl fyrir rúmu ári síðan og gerði þá að ræðuefni stefnu í flugmálum sem sárlega hefur skort á hjá ríkisstjórn Íslands. Þetta er ein stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar. Fyrir svörum var hæstv. sveitarstjórnar- og samgönguráðherra. Svörin voru þau að allt of lítið hefði verið gert allt of lengi og að nú yrði ekki setið hjá. Samt hefur ekkert verið gert.
Ég ítrekaði þessa fyrirspurn 9. október síðastliðinn í tengslum við umræðu um samgönguáætlun og allt á sömu leið. Samgönguáætlun hefur ekki litið dagsins ljós og eftir því sem ég kemst næst í umhverfis- og samgöngunefnd hefur umræðu um hana verði frestað, alla vega fram á haust.
Þar er komið inn á að öruggir og traustir innviðir séu inntak áætlunarinnar. Þá er þess skemmst að minnast að a.m.k. í þremur tilfellum á síðustu 24 mánuðum hefur legið við neyðartilfellum á Íslandi vegna ástands á varaflugvöllum hér innan lands.
Ekki er búið að taka í notkun hæfisbundna leiðsögu, „Performance based navigation“, upp á enska tungu, með leyfi forseta. EGNOS-leiðréttingarstöðvum hefur ekki verið komið fyrir á Grænlandi. Samgöngustofa er vanfjármögnuð og illa stödd til að taka á þessum málum þrátt fyrir að þar sé afburðahæft fólk sem bæði er tilbúið og viljugt til að vinna vinnuna. Fólkið getur hreinlega ekki unnið þessa vinnu nema fjármagn komi til og stefna frá stjórnvöldum.
Það vantar stefnu og leiðtoga í þessu máli og ég auglýsi hér með eftir því.