störf þingsins.
Herra forseti. Ég vil við þetta tækifæri bregðast örlítið við ummælum í ræðu hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur áðan þar sem vikið var að hvalveiðum Íslendinga. Mér finnst rétt að við höldum því til haga í umræðunni að ákvarðanir íslenskra stjórnvalda um að heimila veiðar eru byggðar á traustum vísindalegum grunni. Þær tegundir sem heimilað er að veiða úr eru ekki með neinum hætti í nokkurri hættu. Það er líka ljóst að Ísland hefur jafnan haldið til haga þjóðréttarlegum rétti sínum til að nýta þessa auðlind með sama hætti og aðrar auðlindir í landi og í lögsögu landsins. Ég held að mikilvægt sé að halda því til haga.
Það eina sem ég get tekið undir í ræðu hv. þingmanns er að við þurfum að sjálfsögðu að meta stöðu landsins á mörkuðum, viðskiptahagsmuni og annað þess háttar. Þar getum við horft til strauma og stefna í nágrannalöndunum eða okkar helstu viðskiptalöndum.
Við þurfum líka að líta til reynslunnar. Ég verð að segja eftir að hafa verið í þessum sal í alllangan tíma, bráðum 16 ár, hef ég með reglulegu millibili heyrt heimsendaspár um viðskiptahagsmuni Íslendinga, bæði hvað varðar útflutning og ferðaþjónustu vegna ákvarðana sem við höfum verið að taka á sviði hvalveiða. Ég hef ekki séð nein merki um að hvalveiðar hafi haft þau áhrif eða að þær heimsendaspár sem margoft hafa verið settar fram við okkur þingmenn af ýmsu tilefni og í tengslum við hvalveiðar hafi komið fram eða átt við rök að styðjast.