149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Við vorum að fá nýja hagspá og hún er verri en hagspáin sem fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar byggir á. Það þarf að gera breytingar. Áætlunin kemur aftur inn í þingið til síðari umr. og samþykktar og fyrir þann tíma þarf ríkisstjórnin að vera búin að setja fram breytingartillögur sínar.

Fjármálaáætluninni eins og hún var þegar hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra mælti fyrir henni er með góðum afgangi af ríkissjóði í samræmi við fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar. Þegar hv. stjórnarþingmenn og jafnvel einstakir hæstv. ráðherrar hafa tjáð sig um viðbrögð við niðursveiflunni hér í þingsal og í fjölmiðlum nefna þeir gjarnan afganginn, hann sé nú ríflegur eða rétt um 30 milljarðar og það megi alltaf að ganga á hann.

En málið er ekki svona einfalt, forseti. Fjármálastefna ríkisstjórnar er lögð fram aðeins einu sinni á hverju kjörtímabili og gildir í fimm ár eða þar til ný ríkisstjórn setur fram nýja stefnu. Fjármálastefnan er eitt mikilvægasta þingskjal kjörtímabilsins. Í henni felst skuldbinding um hvernig haga eigi tekju- og útgjaldastefnu stjórnvalda og ströng skilyrði eru fyrir endurskoðun hennar. Hana má aðeins endurskoða ef grundvallarforsendur hennar bresta eða fyrirsjáanlegt er að þær muni bresta vegna efnahagsáfalla, þjóðarvár eða annarra aðstæðna sem ógerlegt er að bregðast við með tiltækum úrræðum.

Ríkisstjórnin brýtur því lög ef hún ætlar að ganga á afganginn við þær aðstæður sem nú eru uppi. Hún þarf annaðhvort að breyta lögunum áður en hún ákveður að ganga á afganginn eða bregðast við á tekju- og útgjaldahlið ríkisfjármála. Annaðhvort þarf að skera niður eða hækka skatta.

Ég skora á hv. stjórnarþingmenn að leggja frekar til auðlindagjöld og auðlindaskatta en að láta þau bera niðursveifluna sem helst þurfa á þjónustu og stuðningi ríkisins að halda, t.d. sjúklinga, aldraða eða barnafjölskyldur.