störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég vil gera að umtalsefni í dag vegalagningu um Gufudalssveit, svokallaðan Teigsskóg, eins og við þekkjum það flest úr umræðunni. Þann 22. janúar sl. samþykkti sveitarstjórn Reykhólahrepps að farin skyldi hin svokallaða ÞH-leið með nýjan veg um Gufudalssveit.
Við þekkjum öll umræðuna um þetta mál. Þetta hefur verið ótrúleg sorgarsaga og hallar í tvo áratugi sem sú sorgarsaga hefur gengið. Nú er svo komið að sveitarfélagið hefur tekið af skarið og lagt fram þessa tillögu og samþykkt og nú er verið að vinna í aðalskipulagsbreytingu og auglýsingu hennar.
Ég vil vekja athygli á því að þann 11. apríl sl. var dreift hér á Alþingi frumvarpi til laga um framkvæmdaleyfi vegna uppbyggingar á Vestfjarðavegi. Það tókst svona hálfklúðurslega til hjá fyrsta flutningsmanni málsins, hv. þm. Haraldi Benediktssyni, 1. þm. Norðvest., að láta vita af framlagningu þessa máls því að margoft hafði verið rætt um það í þingmannahópi kjördæmisins. Látum það liggja á milli hluta. Það sem er athyglisvert og ég tel ástæðu til að beina því til forseta, en sá sem nú situr á forsetastóli er einn af flutningsmönnum frumvarpsins, er að á frumvarpinu eru 19 þingmenn. Þar af eru 12 frá Sjálfstæðisflokki og sjö frá öðrum flokkum. Sjálfur var ég staddur erlendis þegar kallað var eftir meðmælendum og var of seinn til að melda mig. En ég hef leyfi til þess að tilkynna það hér að allir þingmenn Miðflokksins munu styðja mál sem þetta.
Ég gef mér að þeir tveir ráðherrar sem eru jafnframt þingmenn Norðvesturkjördæmis muni styðja málið og jafnframt tveir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins sem ekki eru flutningsmenn. Þarna er kominn 31 þingmaður og vantar þá bara einn upp á að ná tryggum meiri hluta fyrir málinu (Forseti hringir.) sem myndi loksins höggva á þennan hnút sem hefur varað allt of lengi, íbúum Vestfjarða og öllum þeim sem þangað vilja fara til mikilla trafala. Vil ég því skora á hæstv. forseta að horfa til þess að þetta mál, frumvarp til laga um framkvæmdaleyfi vegna uppbyggingar (Forseti hringir.)á Vestfjarðavegi, verði tekið á dagskrá.