149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:58]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Eins og ég skil hana þá gefur hv. þingmaður lítið fyrir tillögu Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirsts, sem þeir töldu lagalega öruggustu leiðina. Í annan stað langar mig að nefna hinn ágæta mann sem við fengum í heimsókn, Carl Baudenbacher, sem ég átta mig eiginlega ekki alveg á. Hann sagði einfaldlega við okkur að Evrópusambandið tæki engum vettlingatökum á aðildarríkjum, hvort sem þau væru lítil eða ekki, sem undirgengjust ekki þær þjóðréttarlegu skuldbindingar sem þau hafa gert með samningum sínum.

Ég spyr: Hvað gæti mögulega gerst? Hvað fáum við sérstaklega út úr því að undirgangast allar þessar orkustefnur hér? Eru íslenskir neytendur í einhverjum vanda á sínum orkumarkaði?