149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:04]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það mun örugglega gleðja marga Norðmenn að heyra af því að þeir fyrirvarar sem þar voru gerðir hafa allir haldið. Það má eflaust vera að það komi fram við umræðuna hér síðar hvernig þau mál standa en látum þar við sitja.

Þingmaðurinn fór yfir það að allir hefðu í rauninni meira og minna í allri meðferð málsins fallist á þá fyrirvara og þau sjónarmið sem við höfum sett fram. Þá hlýtur maður enn frekar að spyrja hvað sé því til fyrirstöðu að senda málið tímabundið, einn snöggan rúnt, til sameiginlegu EES-nefndarinnar og óska eftir því í mesta lítillæti að fyrirvararnir komi inn úr þeirri átt. Ég veit að það myndi róa marga sem horfa til málsins núna. Miðað við viðtökurnar sem framsögumaður meirihlutaálitsins lýsir þá trúi ég ekki öðru (Forseti hringir.) en að viðtökurnar í sameiginlegu EES-nefndinni verði góðar. Hví skyldi sá eini hópur leggjast þver gegn öllum þessum góðu og haldtraustu sjónarmiðum okkar?