149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:49]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef aldrei haldið því fram að með þriðja orkupakkanum værum við að afsala okkur eignarrétti á auðlindum. Þetta snýst um það vald sem Evrópusambandið, og sérstaklega ACER, fá yfir því hvernig haldið skuli utan um þau mál. Það er auðvitað mjög áhugavert að á sama tíma og stjórnarflokkarnir halda því fram að það hafi í rauninni engin áhrif á meðan ekki er búið að tengja landið að þá skulum við leggja fram frumvarp um að breyta Orkustofnun til að hún geti orðið svokallaður landsreglari fyrir ACER.

Svo er afskaplega sérkennilegt að menn skuli leitast við að afsaka það að fara út í jafn áhættusamar aðgerðir og hér eru boðaðar með því að halda því fram að einhverjir menn hafi sagt að þetta kynni allt saman að sleppa. Lítum á raunveruleikann. Berum þetta t.d. saman við afleiðingarnar af …(ÁslS: … Stefán Má.) Já, það er sérstaklega spurt um Stefán Má og ég skal svara því. Stefán Már varar …(Forseti hringir.) Ég mun leitast við að klára að svara þessum spurningum í næstu ræðu minni.