149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:53]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vek athygli forseta á því að hv. þingmaður nefndi ekki dæmi um að ég hefði verið ósammála sjálfum mér, enda getur hann ekki gert það. Hann fór hins vegar aftur í handbók Björns Bjarnasonar og nefndi fund minn með David Cameron um sæstreng. Aftur segi ég: Það segir sína sögu um málefnarýrð þegar meira að segja formaður Samfylkingarinnar þarf að lesa upp úr handbók frá Birni Bjarnasyni um það hvernig Sjálfstæðisflokkurinn geti best varist því að innleiða hér mál sem flokkurinn sjálfur er á móti og hefur ályktað gegn.

En jæja, hv. þingmaður er búinn að lofa að hjálpa ríkisstjórninni við að koma þessu máli í gegn og þá er kannski ekki svo langsótt að hann þiggi leiðsögn frá Sjálfstæðisflokknum í þeim efnum.

En hvað varðar sæstrenginn ætti hv. þingmaður að kynna sér það mál áður en hann talar eins og hann gerði vegna þess að áður en ákveðið var að skoða þetta og eftir tók ég skýrt fram opinberlega að þetta væri gert ekki hvað síst til að leiða það í ljós að það hentaði ekki að leggja sæstreng.