149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:03]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Við Sjálfstæðismenn gleymum ekki þátttöku okkar í ríkisstjórn hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Við gerðum margt alveg sérstaklega vel og erum hreykin af því.

En þegar það er gert tortryggilegt í nefndaráliti að við skulum vera á lista IceLink er samt allt í lagi að kannast við að það var með samþykkt ríkisstjórnar hv. þingmanns, undir forsæti hans, sem það var ákveðið.

Og annað í viðbót: Sama ár er eitt stærsta skref stigið í þá átt að innleiða þriðja orkupakkann í íslenskan rétt þegar samþykkt var að frumkvæði ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar að innleiða kerfisáætlun í íslensk lög áður en sameiginlega EES-nefndin hafði innleitt orkutilskipunina. Það er eitt stærsta skrefið sem við höfum tekið hér á Íslandi við (Forseti hringir.) að innleiða þriðja orkupakkann í íslensk lög. Og það var ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem gerði það.