149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:05]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nú er þetta orðið helst til langsótt hjá hv. þingmanni þegar hann er farinn að tína til hluti sem eru málinu — ég segi ekki ótengdir, en hafa samt ekkert með þá innleiðingu sem hér er verið að ræða að gera. Enda, eins og ég gat um áðan, kom málið fyrst inn í sameiginlegu EES-nefndina árið 2017.

En ég get hins vegar ekki annað, í ljósi þessarar nálgunar hv. þingmanns, en dregið það fram eina ferðina enn hversu aumur málflutningur þetta er, ef hann þarf að byggjast á því að reyna að leita að einhverjum atburðum í fortíðinni til að réttlæta það sem menn eru að gera núna.

Og þá skal ég bara lýsa þessu yfir, virðulegur forseti: Hafi ég einhvern tímann ekki gert eitthvað sem ég hefði getað gert til að koma í veg fyrir að ríkisstjórnin gæti komið með þennan þriðja orkupakka núna biðst ég afsökunar á því.