ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég lít nú reyndar þannig á að ég hafi fyrst og fremst skyldum að gegna gagnvart þjóðinni og því sem ég tel að sé gott fyrir hana. Hlutverk mitt sem bardagahundur gagnvart stjórn á hverjum tíma verður bara að koma í annað sæti. Hér hef ég farið yfir að við erum að ræða mjög mikilvægt mál sem lýtur ekki síst að því að verja okkar stöðu í dýrmætasta samningi sem þjóðin hefur gert. Við þau skilyrði held ég að forverar mínir, norrænir jafnaðarmannaformenn, þótt þeir hafi margir kannski ruslað til sín fleiri atkvæðum en ég, hefðu gert nákvæmlega það sama.