ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Fyrst er ágætt að nefna það að norskir jafnaðarmenn greiddu fyrir þessu máli í gegnum norska þingið. Þegar kemur að gagnrýnisleysi þá spyr ég: Hvað útskýrir gagnrýnisleysi Miðflokksins á orð formannsins? Hefði ekki verið nær, hv. þingmaður, þegar viðvörunarbjöllur hringja, að mæta á nefndarfundi og kynna sér málflutning þeirra sem komu þar? (Gripið fram í.) Ég nefni, hv. þingmaður, að bæði Skúli Magnússon og Davíð Þór Björgvinsson eyddu þessum áhyggjum og sögðu að valdframsalið væri ef eitthvað væri minna en í innleiðingu á fjármálaeftirliti, sem mig minnir nú að einhverjir núverandi Miðflokksmenn hafi tekið þátt í að samþykkja hér.