149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:29]
Horfa

Silja Dögg Gunnarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir ræðu hans og yfirferð og sömuleiðis gott samstarf í nefndinni. Það var ánægjulegt að sjá þegar nefndin lauk störfum sínum að fulltrúar allra flokka á Alþingi voru sammála um niðurstöðu málsins, utan þess að einn flokkur, Miðflokkurinn, skilaði séráliti.

Þetta var afrek. Við fórum vel yfir málið og ég held að við hv. þingmaður getum verið sammála um það. Við erum sammála um fleira, það er fleira sem sameinar okkur en sundrar sem betur fer.

Hv. þingmaður nefndi stjórnarskrána, að Landsvirkjun yrði áfram í opinberri eigu og að EES-samningurinn væri mikilvægur. Mig langar til að spyrja hv. þingmann: Var eitthvað sem kom fram á fundum nefndarinnar sem gaf til kynna að íslenska ríkið yrði skaðabótaskylt á grundvelli fjórfrelsisins ef einhverjum aðila yrði einhvern tíma neitað um að leggja sæstreng þrátt fyrir alla þá fyrirvara sem hafa verið lagðir fram með þessu máli?