149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:33]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Já, það er rétt að fram kom hjá fræðifólki að hér væri um ákveðinn neyðarventil að ræða og þá yrði að virkja hann þegar hann skipti þannig máli. Það var vissulega viðurkennt að það er lagalega fær leið að fara með málið svona.

Hins vegar lögðu þeir líka mat á hvernig lagalega yrði litið á það. Þá var náttúrlega sagt að horfa yrði til fjölmargra hluta, ekki síst til tímalínunnar í málinu og með hvaða hætti við brugðumst við á þeim tíma sem var eiginlega ætlast til að við kæmum með þessar ábendingar og hvenær ekki. Fjölmörg önnur atriði voru dregin upp sem gerðu að verkum að ég sannfærðist um að háskalegt væri að fara þessa leið. Þar fyrir utan komu fleiri en einn og fleiri en tveir inn á það að þetta mál er aldrei bara lagalegt, það er líka pólitískt og mun hafa afleiðingar sem slíkt.