149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:35]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það er ekki eins og þessi tilskipun hafi fallið beint á borðið hjá manni án aðdraganda. Það hefur verið unnið að þessu máli í fjölda ára, fyrirvarar skoðaðir, hvaða undanþágur á eftir að sækja um og annað slíkt. Þegar málið kemur fyrst inn þá skoðum við það, eins og öll önnur mál, með gagnrýnum hætti.

Fljótlega áttuðum við okkur á því að þetta mál væri að mörgu leyti gott mál. Það felst í því ýmislegt sem horfir til bóta, svo sem neytendavernd og upplýsingarvernd og annað. Fyrsta verið er að spyrja mig um líðan mína síðustu vikur og mánuði þá jókst sannfæring mín við hvern fund sem ég sótti, þar sem við fengum inn til okkar sérfræðinga, og fullvissa fyrir því að við værum að stíga framfaraskref. Ég vildi óska þess að allir hefðu mætt á fundina.