149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:36]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Þá kemur að hinu atriðinu sem mig langaði að koma inn á gagnvart hv. þm. Loga Einarssyni. Í ræðu sinni fjallaði hann um það að samfélagið og umhverfið allt þróist með árunum. Þetta mál þróaðist, það var skoðað á hinum ýmsu tímapunktum en samt virðist vera algjörlega bannað að líta til annarrar áttar en þeirrar sem var mörkuð í upphafi.

Hv. þm. Logi Einarsson segir að samfélagið og allir hlutir hafi þróast og samningurinn er 25 ára, hann er nú samt ekki eldri en það. Hann taldi upp ýmsa hluti sem hefðu breyst er sneru að honum í ræðu sinni áðan. Hvers vegna hefur þingmaðurinn svona miklar efasemdir um að mögulega sé sú staða uppi að einhverjir hafi skipt um skoðun á leiðinni? Er ég þá ekkert sérstaklega að tala um ráðherra í ríkisstjórn á tímabilinu 2013–2016 heldur eru það bara býsna margir. Maður sér t.d. núna að þingmenn Framsóknarflokksins hafa meira og minna allir skipt um skoðun á málinu. Þetta er því víðtækt en það fer í báðar áttir.