149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:39]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætlaði ég ekki að koma í andsvar við hv. þm. Loga Má Einarsson en ég sat niðri í þingflokksherbergi og hlustaði á hans góðu ræðu, sem ég þakka honum kærlega fyrir. Það sem fékk mig til að koma hingað upp var þegar hann undir lok ræðunnar byrjaði að gusa út úr sér að þeir sem ekki væru á einu máli um hvað nákvæmlega er um að ræða við innleiðingu þriðja orkupakkans væru ýmist með hræðsluáróður — hvað á ég að segja? Þeir væru jafnvel með hættulegt orðfæri eða að reyna að slá pólitískar keilur.

Ég spyr hv. þingmann: Finnst honum boðlegt í alvörunni að segja svona hluti þegar við erum að tala um tjáningarfrelsi, skoðanaskipti og reyna að bera virðingu hvert fyrir öðru í þessum ágæta sal?