ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Samþykkt eða innleiðing þriðja orkupakkans snýst hvorki um yfirráð yfir orkulindum eða auðlindum landsins né árás á fullveldi Íslands. Þetta eru mínar fullyrðingar og fyrir þeim hef ég fært ýmis rök. Andstaðan byggir málflutning sinn á fullyrðingum sem ég tel ýmist röklitlar eða rakalausar um valdheimildir ACER-stofnunarinnar sem ekki standast, um orkumarkmið Evrópu sem ekki standast, um frjálst flæði vöru sem ekki standast og um hættuleg tap á fullveldi Íslands sem ekki standast.
Ég ætla að eyða tíma mínum í að fjalla aðeins um þessi atriði og byrja á þessari ACER-stofnun, sem okkur er sagt að muni þróast í alhliða valdastofnun í orkumálum, eins konar orkustofnun Evrópu — hún muni gera það og hún muni þvinga fram sæstreng til Íslands. Og rökin eru oftast orðuð þannig að eitt og annað geti gerst. Já, já, gott og vel. Hún hefði þá lagaheimildir, svo sem til að gefa út rannsóknarleyfi vegna virkjana, jafnvel framleiðsluáætlanir innlendra aðila, yfirfara innlenda kerfisáætlun raforkuflutnings með endanlegum úrskurði um magnsölu til annarra landa og t.d. sölu yfir í sæstreng þá og fleira skylt. Fyrir mér eru þetta vangaveltur, spekúlasjónir.
En hvert er þá valdsvið ACER í raun, þessarar samhæfingarstofnunar innlendra eftirlitsaðila? ACER hefur, samkvæmt reglugerð, eftirlit með raforkusölu milli landa með virkri samkeppni á gegnsæjum neytendamarkaði innan lands í EB eða ESB-löndunum og milli þeirra. Þá langar mig að benda á að í öllum tilvikum er um sölu- og neytendamarkað að ræða með hefðbundnum viðskiptum. Þetta eru samningar, tvíhliða eða fleirhliða. Þetta eru útboð eða uppboð. Þetta er gert samkvæmt gildandi lögum hvers lands, ekki einhverju sameiginlegu regluverki Evrópusambandsins og ekki með valdboðum ACER. Ég spyr: Stendur eitthvað annað í reglugerðinni? Vilja hv. andstæðingar þá ekki koma og sýna okkur fram á að það standi eitthvað annað í reglugerðinni en ég hef hér sett fram í grófum dráttum?
Svo skal þetta skýrt frekar. Hlutverk ACER helgast af því m.a. að komi til óleystra deilna milli viðskiptaaðila, frjálsra viðskiptaaðila, svo sem fyrirtækja eða fyrirtækja og ESB-ríkis eða tveggja ríkja — því að við vitum jú að í mörgum ríkjum eru orkufyrirtæki og flutningskerfi í ríkiseigu — þá skiptir ACER sér af því, reynir málamiðlun, fellir úrskurð gerist þess þörf. Það er vissulega á endanum einhvers konar yfirþjóðleg niðurstaða. Þetta er skelfilegt orð, yfirþjóðlegt. Hugsið ykkur. Við erum meira að segja aðilar að slíku, fjölmörgum deilum þar sem vísað er til alþjóðlegra stofnana í ljósi alþjóðlegra reglna eða samninga. Við lútum yfirþjóðlegum niðurstöðum, deilur um samkeppnisreglur, deilur um fjármálaeftirlit, deilur um mannréttindamál, deilur um einhvers konar matvælaeftirlit o.fl. Í hvert sinn sem við tökum upp eða fullgildum einhvers konar innleiðingu eða samninga í krafti fullveldis sem leyfa slíkt þá erum við að afsala okkur hluta ríkisvaldsins en ekki hluta fullveldisins nema um verulegt afsal ríkisvalds sé að ræða. Og um það er reyndar deilt í tilviki þriðja orkupakkans, þó þannig að mikill meiri hluti sérfræðinga er að baki því mati að afsal ríkisvaldsins í þessu tilviki sé ásættanlegt og teljist ekki brot á stjórnarskrá. Menn leyfa sér hins vegar að velja sér sérfræðinga eftir því sem hentar.
Það eru tveir sérfræðingar sem eru mjög virtir og hafa mestar efasemdir. Allir aðrir hafa ekki þessar efasemdir og ganga lengra og segja: Við þurfum enga fyrirvara. Sá sem hefur vélað um þetta í 25 ár, Davíð Þór Björgvinsson, er jafn virtur og Stefán Már Stefánsson. Hann segir það. Svo bara velja menn sér þetta eftir hentugleikum. Svoleiðis vísindamennsku stunda ég ekki. Ég er leikmaður í lögfræði. Ég halla mér frekar að meiri hlutanum en þeim sem lengst gengur, einfaldlega vegna þess að hann gæti haft dálítið rangt fyrir sér. Hann er ekki hæstiréttur í þessum málum. Sérstakur fyrirvari að auki, sem er viðurkenndur t.d. af sameiginlegu EES-nefndinni, eykur á öryggið að þessu sinni og hann er einmitt settur á vegna álits þeirra tveggja sérfræðinga sem lengst ganga. Það finnst mér ágætisstjórnsýsla.
En hvað svo með EES-ríkin og þriðja orkupakkann? Hafi þriðji orkupakkinn gildi í þeim ríkjum þá fer ESA með þetta ACER-vald sem ég var að útlista en byggt á drögum frá ACER. Svo að ég árétti það þá skiptir öllu máli að verið er að ræða mál sem varða viðskipti byggð á þeim orkuflutningi sem í gildi er hverju sinni en ekki úrskurði um deilumál þar sem einn aðili neitar að selja meiri orku en er á lausu og neitar að bæta við flutningskerfi sitt yfir landamæri. Því það er það sem andstæðingarnir segja að ACER muni gera, hún muni fá þetta vald, en þeir hafa ekkert fyrir sér í því. Auðvitað er undantekning sem felst í því að ef viðkomandi aðili beinlínis uppfyllir ekki eða brýtur frágenginn frjálsan samning þá kemur ACER til skjalanna. Til þess er þessi stofnun rétt eins og aðrir eftirlitsaðilar með brotnum samningum.
Um þvingunaraðgerðir ACER gagnvart þeim sem stunda orkuframleiðslu í samræmi við lög og reglur fullvalda ríkja eða selja raforku úr landi hef ég ekki fundið dæmi. Ég skora þá á andstæðingana að koma með dæmi.
Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson reyndi það, benti á Kýpur, en hann sagði ekki rétt frá. Kýpur framleiðir orku með jarðefnaeldsneyti, sólar- og vindorku og eyjan mun tengjast Grikklandi, Krít og Ísrael með sæstreng í framtíðinni. Í gögnum sem ég hef farið í gegnum þá gat ég ekki fundið valdboð, aðeins sameiginleg markmið Kýpur og ESB um vaxandi hluta endurnýjanlegrar orku í landinu í samningum á milli þessara tveggja aðila. Ég fann orð um samninga, orð um sjálfstæðar ákvarðanir Kýpverja eftir því sem best verður séð, þannig að þvert ofan í orð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar var ACER ekki einhvers konar eftirrekstraraðili og úrskurðaraðili um framleiðslu til þessa strengs eða hvaðeina, heldur sá aðili sem mun koma að viðskiptum með raforku í gegnum þennan sæstreng þegar þar að kemur.
Aðeins þá um hinn svokallaða sameiginlega orkumarkað okkar. Það er hamrað á því að til sé að verða þetta umrædda orkubandalag Evrópu, stundum orðað einhvern veginn öðruvísi, en það er þessi miðstýrði og ákvarðandi aðili sem tekur ákvarðanir þvert á landamæri og þvert á full yfirráð landa yfir orkuauðlindum. Svona orðfæri getur heppnast vegna þess að verið er að tengja þetta innri orkumarkaði í Evrópu. Hann er til, en það er ekki neitt orkubandalag. Það er markaður sem gengur út á það, eins og ég er búinn að útskýra, að viðskipti frá einu landi við annað, eða milli fleiri landa, gangi fyrir sig á hefðbundnum, ég kalla það kapítalísku ef menn vilja, markaðsforsendum, ekki á neinu valdboði.
Menn sjá fyrir sér stofnun eða starfsemi miðlægrar stofnunar þar sem fullvalda ríkjum verði fyrirskipað að framleiða tiltekið orkumagn með tilteknum aðferðum og enn fremur jafnvel sameiginlega verðmyndun og loks fyrirskipanir um að selja ákveðið magn raforku úr landi samkvæmt einhvers konar sovéskri áætlun. Þetta er framtíðarmyndin sem andstæðingar þriðja orkupakkans veifa framan í alþjóð, jafn líkleg og hún er. Allt á þetta að vera byggt á því að stjórnvöld lúti miðstýringu Evrópuþingsins og ráðamanna í Brussel. Ég tel þessa sviðsmynd eintóman tilbúning. Og það má kannski segja sem svo að einhvern tímann í fjarlægri framtíð, eftir náttúruhamfarir eða stríð eða hvaðeina, að eitthvað svona gæti komið til. En í þeim gögnum sem ég hef fundið um orkustefnu Evrópu er þetta ekki að finna.
Ég vil taka það fram, líkt og verkalýðshreyfingin, alþýða manna víða um heim og félagsleg öfl hafa haldið fast fram, að grunnnetin eiga að vera í opinberri eigu og þau eru það hér á landi og þau eru það víða annars staðar. Ég hef ekki séð neina sérstaka breytingu á því, a.m.k. ekki á Íslandi, hvað annað sem kann að vera í öðrum löndum.
Og hver er þá þessi umræddi innri markaður ESB með nánari orðum? Hann byggir á tvenns konar markmiðum, samvinnu um þá mögulegu raforkusölu sem ríki geta eða vilja stunda yfir landamæri á forsendum opins markaðar, þessa kapítalíska sem ég sagði, hefðbundinn markaður, og á aukinni hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa í heildarorkuframleiðslu álfunnar og á forsendum samninga sams konar markaður. Þetta eru sem sagt annars vegar viðskipti með það sem er til aflögu fyrir aðra og í þágu loftslagsmarkmiða allrar álfunnar og ég get ekki verið á móti því sem sósíalisti.
Það er ekkert í þriðja orkupakkanum sem ber vott um einhvers konar miðstýrt orkubandalag, svo að ég endurtaki það einu sinni enn. En það má hins vegar vel vera að ESB semji í náinni framtíð við ríki um sjálfstæða áætlun þeirra hvers um sig um orkuskipti í framleiðslu- og dreifingargeiranum, eins og ég ámálgaði varðandi Kýpur, og þá um eftirlit með því að sá samningur haldi. Það er engin goðgá. Það væri væntanlega í þágu andófsins gegn hlýnun jarðar og ekki sjálfkrafa af hinu illa, enda væru yfirráð ríkja yfir eigin auðlindum í landi óskert. Verði þriðji orkupakkinn innleiddur hér og í hinum EES-ríkjunum verður Noregur hluti af innri markaðnum hvað eðlilegt eftirlit með frjálsum viðskiptum varðar og hann er enda löngu þræltengdur við meginlandið yfir sjó, en Ísland verður það ekki, verður ekki hluti af innri markaðnum, nema sæstrengur sé samþykktur og lagður. Það er rangt að líta svo á að með innleiðingu þriðja orkupakkans án sæstrengs sé Ísland orðið aðili að innri markaðnum vegna þess að innri markaðurinn byggir á samtengingu landa. Menn hljóta að skilja íslensku.
Aðeins um frjálst flæði vöru. Noregur hefur ekki glatað yfirráðum yfir neinum orkulindum áður en hann gerðist aðili að þriðja orkupakkanum, við reiknum með að hann verði það. Það hefur enginn fyrirskipað Norðmönnum að selja svo og svo mörg megavött til Evrópu. Það byggir á frjálsum samningum við bæði Statnett og Statkraft, aðra aðila og norska ríkið. Þannig verður það áfram. Það finnast ekki heldur önnur dæmi um að EES-ríki eða ESB-ríki hafi misst ákvörðunarvald yfir því hve mikil raforka er framleidd innan lands, hvar og með hvaða hætti. Dæmi? Komið með þau. Og ekki heldur um að ACER eða aðrir aðilar innan ESB hlutist til um að tengingu sé þröngvað upp á lönd innan eða utan ESB. — Svíar selja Finnum rafmagn um sæstreng. Finniði einhverjar þvingunaraðgerðir í þeim viðskiptum?
Það er fráleit rökleysa rétt eins og að einkaaðili eða norska Statkraft geti krafist raflínu til Svíþjóðar af því að þar bíði kaupandi. Þetta er okkur sagt. Hv. þm. Inga Sæland hefur spurt hvern einasta aðila að þessu á fundum utanríkismálanefndar með gestum og alltaf fengið þau svör að frjálst flæði vöru þýði ekki þetta. Það gildi allt annað þar um, því að frjálst flæði vöru sé auðvitað ekki alfrjálst. Og af hverju ekki? Það verður ávallt að líta til lagaumhverfisins fyrir viðkomandi vörusölu eða vöruframleiðslu, eðli framleiðslunnar. Er þetta raforka eða er þetta tyggjó? Og í sumum tilvikum líka laga um dreifingu eða flutning vörunnar að landamærum. Það er hægt að flytja tyggjó í vörubíl, en þú flytur raforku í gegnum mjög flókið kerfi. Um raforkuver eru í gildi viðeigandi lög í hverju landi. Það er orkustefna, framleiðsluáætlanir, þær eru yfirleitt opinberar og bundnar umhverfismati, opinberum leyfum einhverrar orkustofnunar, sveitarfélaga, ríkisstofnunar, jafnvel þings. Það eru kerfisáætlanir flutnings, lagningaleyfi lína um einkalönd og þjóðlendur. Hvað sæstrenginn varðar þá bætast við leyfi til lagna um landgrunn og efnahagslögsögu.
Það eru kostulegar staðhæfingar að halda því fram að EES-samningurinn, með sínu fjórfrelsi og ákvæði um full yfirráð yfir auðlindum, opni á einhvers konar skyldur sem neyða tengingu raflína við önnur Evrópuríki upp á EES-ríkin af því að raforka er vara. Sú vara lýtur einfaldlega ekki þeim skilyrðum sem við vitum að eru til í sumum tilvikum. Opnað er fyrir frjálst flæði vöru milli landanna sem búa í fjórfrelsinu, með samningum og markaðslausnum, og það eru opinber yfirvöld sem liðka fyrir viðskiptunum með fríverslunarsamningi eða annars konar samningum. En það er engin framkvæmdaskylda um einhvers konar afarsamninga eða fyrirskipanir að utan um að byggja eigi flugvöll, byggja stórskipahöfn eða taka á móti rafstreng eða leggja hann. Það er tilhæfulaust með öllu. Ég ætla ekki að nota sterkari orð. Þannig að allar pælingar um að frjálst flæði vöru gildi um raforku eins og hvað annað og það neyði okkur til að leggja sæstreng, af því að ACER segir það eða Brussel segir það, eru rangar.
Þegar verst lætur, og það skulu vera mín lokaorð, þá er málflutningur sumra andstæðinga þriðja orkupakkans rangur, en þá tek ég fram að þeir eru jafn margir og þeir eru misjafnir. Ég tek líka fram að ég deili áhyggjum fólks almennt séð um full yfirráð yfir auðlindum Íslands, deili áhyggjum um að við glötum ekki meiru af ríkisvaldi eða meiru af fullveldi Íslands, ef við orðum það svo, en við getum mögulega þolað í nafni alþjóðlegrar samvinnu. En þegar verst lætur þá lít ég svo á að málflutningurinn sé alvarleg aðför að staðreyndum um orkumál á Íslandi, afflutningur. Ég lít svo á að viðkomandi aðilar, alls ekki allir en sumir, breiði út mjög ruglandi upplýsingar um meðferð ríkisvalds og fullveldis. Það er mjög alvarlegt. Ég lít svo á að þetta sé tilraun til að skapa ruglingslegt andrúmsloft í kringum EES-samninginn. Þess vegna er rétt að halda fast í þær röksemdir sem nefndarálit meiri hlutans byggir á og hægt er að lesa í því plaggi.
Að lokum, herra forseti. Við vinnum hér til nokkurra ára í senn og við höfum nánast innleitt þessa þrjá orkupakka með samþykkt þess sem hér er ræddur og svo bíða fleiri. Við höfum fengið smáádrátt um hvað sá fjórði mun innihalda, sem lýtur að sparnaði, umhverfismálum og öðru slíku. Kannski eygjum við eitthvað sem okkur er andsnúið sem gæti þýtt einhver minni yfirráð yfir orkuauðlindum, skulum við segja, en þá eru menn væntanlega á varðbergi á sínum stað í Brussel. Við gerum þá fyrirvara og sækjum um undanþágur í tæka tíð og þurfum ekki að standa hér og deila um það hvort einhver hafi sofnað á vaktinni eða verið grænn í framan og saklaus o.s.frv.
Ég mælist til þess að hv. þingheimur samþykki innleiðingu þessara tveggja þingsályktunartillagna og samþykki þau tvö frumvörp sem um er að ræða.