149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:08]
Horfa

Silja Dögg Gunnarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni fyrir gott svar. Ég missti líklega af svarinu við spurningu minni varðandi verðmyndunina, verðlagninguna, hvort þingmaðurinn telji að eitthvað í orkupakka þrjú gefi til kynna að slík ákvörðun verði tekin í Brussel að raforkuverð muni hækka gríðarlega eins og sumir hafa haldið fram.

Mig langar einnig til að spyrja hv. þingmann um fyrirvarana sem lagðir hafa verið fram með málinu, þ.e. frumvarp hæstv. iðnaðarráðherra sem og yfirlýsing orkumálaráðherra Evrópusambandsins frá 20. mars og utanríkisráðherra Íslands og einnig bréfið frá EFTA-þjóðunum sem eiga aðild að EES-samningnum frá 8. maí sl.: Er þingmaðurinn sammála mér, og ekki bara mér heldur einnig sérfræðingum sem nefndin hefur leitað álits hjá, um að þessir fyrirvarar standist gagnvart lögum, hafi þjóðréttarlegt gildi til lengri framtíðar?

Mig langar í fyrsta lagi til að heyra skoðun þingmannsins á því hvort sú leið sem þingmenn Miðflokksins hafa talað fyrir, þ.e. að Alþingi hafni innleiðingu á þessu stigi máls, sé nauðsynleg í ljósi hagsmuna Íslendinga. Í öðru lagi: Telur þingmaðurinn þá leið vera færa í ljósi þess að við viljum halda áfram samstarfi við EFTA-þjóðirnar, það liggur alla vega ekkert annað fyrir hvað það snertir, og vera áfram aðilar að EES-samningnum?