149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:10]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Aftur: Þökk fyrir spurningarnar og ekki fækkaði þeim. Með verðlagið — það er á engan máta hægt að sjá að eftirlitsstofnunin ACER eða eitthvert miðlægt vald í Brussel geti vélað um raforkuverð á Íslandi. Það eru þau fyrirtæki sem hér eru sem það gera. Ég held að það væri líka þannig að til framtíðar gengi það ekki upp með ólík lönd í Evrópu, ef svo væri. Ekki er hægt að hugsa sér einhvers konar sameiginlega verðmyndun í löndum, aðstæður eru svo ólíkar.

Um þessa fyrirvara: Ég verð að treysta á sérfræðinga. Ég er ekki nægilega lögfróður, og allra síst í stjórnskipunar- og alþjóðarétti, til að gera annað en að segja: Já, ég treysti þessum fyrirvörum, það eru nægilega margir sem segja mér að þetta gangi upp, hvort sem er fyrirvarinn sem orkumálaráðherrann kom með eða bréfið sem vísað er til frá 8. maí — og ég má ekki gleyma fyrirvara þingsins sjálfs, þ.e. við höfum enn þá lýðræðislegt þjóðþing og getum ákveðið eitt og annað. Það að vísa þessu aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar, eins og Miðflokkurinn leggur til — þá var ég líka að vísa til sérfræðinga og ekki síst Baudenbachers, sem ég held að tali af töluverðri reynslu og við verðum að líta á sem jafngildan bestu sérfræðingum í þessu. Og hvort þetta hafi verið nauðsynleg leið, eða hvort þetta eigi að vera nauðsynleg leið? Ég tel svo ekki vera. Það eru aðrir lögspekingar sem ganga langtum lengra í hina áttina og segja að það sé fullkomlega óþarft að vera með fyrirvara og fullkomlega óþarft að hafa nokkrar áhyggjur af framvindunni áfram. Það eru míns svör.