ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Megináhrifin af orkupakkanum fram að sæstreng — nú vitum við ekki hvort sæstrengur verði á dagskrá eftir þrjú ár eða 30, en gott og vel. Það sem mun gerast er að Orkustofnun verður að búa sér til horn þar sem starfsmenn starfa, sem hafa með eftirlit með raforkuviðskiptum á Íslandi að gera og fyrst og fremst í lágspennta dreifikerfinu, neytendamarkaðnum. Þetta eftirlit mun ganga út á að reyna að halda uppi virkri samkeppni, gagnrýna það sem er gagnrýnisvert í því öllu saman. Þeir hafa eftirlit með réttindum neytenda og öðru slíku. Þeir ráða ekki verði. Það eftirlit getur ekki hlutast til um framleiðsluáætlanir, kerfisáætlanir Landsnets, rammaáætlun okkar í orkumálum eða neitt slíkt. Annað mun ekki gerast hér. Það ku kosta í upphafi um 47 millj. kr. að fara út í þessa breytingu og meðan hér er ekkert annað á ferðinni — nú veit ég ekki með fjórða og fimmta orkupakkann, það getur vel verið að það komi eitthvað til kasta þessarar skrifstofu. Ég get ekki svarað því.
Uppskipti fyrirtækja, Landsnets, Landsvirkjunar, þeir einu sem geta stuðlað að þeim uppskiptum erum við sjálf, þingið og þær hugmyndir sem eru hér pólitískar innan lands. Landsnet er í eigu nokkurra opinberra fyrirtækja. Verið er að tala um að sameina þann eignarhatt allan undir ríkið. Landsvirkjun er líka í eigu nokkurra fyrirtækja eins og þingmenn vita og ekki stendur til að breyta (Forseti hringir.) því neitt. Ég sé því engar breytingar í kortunum.