149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

lengd þingfundar.

[15:03]
Horfa

Forseti (Guðjón S. Brjánsson):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfundar, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Ef enginn ágreiningur er um þetta skoðast það sem samþykkt. (Gripið fram í.)

Eins og þekkt er liggur fyrir töluvert langur mælendalisti varðandi mál það sem er til umfjöllunar. Það er vilji forseta að þoka þessu máli eins langt og hægt er fram á kvöldið. Vonandi gengur það vel og hefur ekki verið tekin afstaða til lengdar fundar fram eftir kvöldi. Ef ekki er óskað eftir atkvæðagreiðslu leyfir forseti sér að líta svo á að það sé samþykkt.