149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

fjármálaáætlun.

[15:05]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Núna eru átta þingdagar eftir af þessu löggjafarþingi, fyrir utan um daginn í dag, samkvæmt starfsáætlun þingsins. Við eigum von á fjármálaáætlun í næstu viku, væntanlega mikið breyttri vegna óhagstæðrar hagspár sem Hagstofan kynnti á dögunum.

Eins og margir aðrir hef ég áhyggjur af því hvernig hæstv. ríkisstjórn bregst við, bæði hvernig áætlunin verður á gjaldahlið og tekjuhlið. Einkum er árið í ár og það næsta mikilvægt, árið í ár sem rammi fyrir fjáraukalög eða nýtingu varasjóða og það næsta sem rammi fyrir fjárlagafrumvarp 2020.

Hv. stjórnarþingmenn segjast sumir ekki hafa miklar áhyggjur af niðurskurði í ríkisrekstri eða af fyrirhugaðri innviðauppbyggingu vegna verri hagspár því að afgangur sé ríflegur og það sé bara hægt að ganga á hann og láta áætlunina standa að öðru leyti.

Ég vil spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvort hann sé sama sinnis og þessir hv. stjórnarþingmenn.

Í 10. gr. laga um opinber fjármál eru ströng skilyrði fyrir því hvenær breyta má fjármálastefnu ríkisstjórna sem sett er og samþykkt af Alþingi fyrir kjörtímabilið. Telur hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra mögulegt að ganga á áætlaðan afgang af ríkissjóði og víkja frá fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar sem samþykkt var í fyrra við þær aðstæður sem nú eru uppi í efnahagslífinu, án þess að breyta lögum um opinber fjármál?