149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

fjármálaáætlun.

[15:07]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég er ekki alveg viss um að ég hafi skilið fyrirspurnina. Hvort hægt sé að ganga á afganginn án þess að breyta lögum um opinber fjármál? Ef spurningin er um það er alveg augljóst að fjárlög hvers árs eru samþykkt hér á þinginu og hugsunin er sú í lögunum að við stillum fjárlögunum upp í samræmi við áætlunina, sem kallast aftur á við stefnuna sem við setjum í upphafi kjörtímabils.

Síðan geta hlutir auðvitað komið upp á miðju fjárlagaári sem leiða til þess að markmiðum fjárlagafrumvarpsins er ekki náð. Það stefnir í að það verði þannig á þessu ári að sá mikli afgangur sem við afgreiddum hér á fjárlögum yfirstandandi árs verði allt annar og miklu minni. Það mun verulega draga úr afkomu ríkisins á þessu ári miðað við hvaða breytingar hafa orðið í hagkerfinu enda er það svo að fjárlögin á hverjum tíma eru auðvitað spá um hvernig ákveðnar þjóðhagsstærðir muni þróast inn í framtíðina.

Ef forsendur bresta síðan hefur það áhrif bæði á tekju- og gjaldahlið. Ég nefni sem dæmi að atvinnuleysisbætur á þessu ári munu rjúka upp og verða mörgum milljörðum hærri en við sáum fyrir.

Ég held að langmikilvægasta spurningin við þær aðstæður sem uppi eru núna snúi ekki að 2019, heldur frekar að komandi árum. Það sem við erum að glíma við núna, eftir að ný hagspá var birt á föstudaginn, er mesta breyting í hagvexti sem við höfum séð í áratugi þegar hrunið er tekið til hliðar, þ.e. það er mesta breyting til hins verra á milli spágerða. Spurningin sem við stöndum frammi fyrir er sú hvort mér beri ekki hreinlega, og ég hallast að því, að koma með nýja fjármálastefnu sem markar þá sporin fyrir framtíðina.