fjármálaáætlun.
Herra forseti. Ég skil hæstv. ráðherra svo að hann telji þá, vegna þess að hann vill koma með nýja fjármálastefnu, að grundvallarforsendur stefnunnar sem nú er í gildi og var samþykkt í fyrra hafi brostið eða þá að fyrirsjáanlegt sé að þær muni bresta vegna efnahagsáfalla, þjóðarvár eða annarra aðstæðna sem ógerlegt er að bregðast við með tiltækum úrræðum.
Þetta stendur í 10. gr. laga um opinber fjármál. Þar eru mjög þröngar skorður settar til að breyta stefnunni hafi hún verið samþykkt fyrir kjörtímabilið og er ætlað að veita ríkisstjórnum aðhald. Þegar eitthvað fer lítillega úrskeiðis eiga þær að bregðast við, annaðhvort með niðurskurði eða tekjuöflun.
Er það svo að hæstv. ráðherra líti á ástandið svipað og að hér sé að koma efnahagsáfall eða annars konar þjóðarvá og forsendur séu til að breyta stefnunni þess vegna?