fjármálaáætlun.
Virðulegi forseti. Ég tel að það séu verulega breyttar forsendur, já. Ég vék að því hér áðan að sú breyting sem hefur orðið á milli spágerðar er veruleg í öllu sögulegu samhengi.
En mér finnst þetta í sjálfu sér ekki vera aðalmálið. Mér finnst þetta í raun og veru vera umræða sem snýst um það hvort menn ætli að gerast formalistar og segja: Það sem Ísland þarf á að halda á árinu 2019 er að menn standi við spágerðina frá 2017. Það er það sem mun tryggja velsæld borgaranna í landinu, að við stöndum við það að skila þeim afgangi sem við spáðum að yrði á opinberum fjármálum árið 2020, eins og við sáum þetta á árinu 2017.
Eða að menn séu raunsæismenn og spyrji alvöruspurninga á borð við þessa hér: Hvað er það í opinberum fjármálum sem kemur að bestu gagni fyrir hagkerfið og fólkið sem býr í þessu landi í dag? (Forseti hringir.) Það er auðvitað alvöruspurningin — nema ef menn ætla að vera formalistar.