afnám krónu á móti krónu skerðingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Það er orðið allt of langt síðan ég og hv. þingmaður höfum rætt þetta mál hér á þingi. Það sem ég vil segja um þetta er að það er gríðarlega ánægjulegt að starfshópurinn, sá sem hv. þingmaður átti sæti í, er núna búinn að skila. Það er alveg rétt að það voru skiptar skoðanir um lokaniðurstöðuna en þó var almenn samstaða, vil ég segja, um mikilvægi þess að ráðast í breytingar á almannatryggingakerfinu, að það þurfi að einfalda. Það var almenn samstaða um að við þyrftum að taka höndum saman um að draga úr nýgengi örorku á Íslandi, m.a. vegna þess að greiningar hafa sýnt að ef við gerum ekkert í þeim málaflokki verður ekki mikið fjármagn aflögu til að auka ráðstöfunartekjur þeirra sem svo sannarlega þurfa á því að halda. Ef engar breytingar verða gerðar munu fjárhæðirnar sem ríkið þarf að setja í þennan málaflokk aukast gríðarlega. Árið 2016 var það 41 milljarður. Ef nýgengið heldur áfram að aukast eins og verið hefur á undanförnum árum fer það í 90 milljarða árið 2030. Þá eru ekki inni í því neinar aðgerðir til að bæta kjör þessa hóps.
Í fjárlögum yfirstandandi árs er ráðgert að 2,9 milljarðar renni til að bæta kjör örorkulífeyrisþega. Í framhaldi af skilum þessarar skýrslu munum við fyrst og síðast horfa til þess að draga úr skerðingum innan kerfisins með þeim 2,9 milljörðum sem eru til ráðstöfunar. Það styður við niðurstöðu þessa hóps og styður við vinnuna sem við þurfum síðan að ráðast í.
Við gerum ráð fyrir því að frumvarp þessa efnis verði vonandi lagt fram í þinginu í næstu viku. Það er verið að leggja lokahönd á það og það er farið í yfirlestur bæði til fjármálaráðuneytis og forsætisráðuneytis. Vonandi getur það komið inn í þingið í næstu viku. Ég hef lagt áherslu á að það gæti orðið að lögum fyrir þinglok. Það snýr nákvæmlega að því með hvaða hætti við drögum úr skerðingum og nýtum til þess 2,9 milljarða sem eru til staðar innan málaflokksins á yfirstandandi ári.